482. fundur Háskólaráðs

Fundur var haldinn fimmtudaginn 23. mars 2026 í gegnum fjarfundarbúnað á Teams.

Áslaug Ásgeirsdóttir rektor setti fund kl. 8:00

Mætt voru auk hennar:

Unnar Jónsson fulltrúi ráðherra
Guðmundur Kristján Óskarsson fulltrúi háskólasamfélagsins
Sigríður Sía Jónsdóttir fulltrúi háskólasamfélagsins
Rakel Rún Sigurðardóttir fulltrúi stúdenta
Ottó Elíasson fulltrúi Háskólaráðs
Bryndís Fiona Ford fulltrúi Háskólaráðs

Einnig mætt:

Sindri S. Kristjánsson skrifstofustjóri rektorsskrifstofu sem ritar fundargerð

 

Rektor kynnti dagskrá.

 

1. Skipulagsbreytingar á stoðþjónustu og stjórnsýslu

2603105

Rektor lagði fram tillögu að nýju skipuriti fyrir Háskólann á Akureyri ásamt tillögu að breytingu á reglum um Háskólann á Akureyri, nr. 694/2022. Tillagan er liður í áframhaldandi þróun á skipulagi og starfsemi háskólans og hefur það að markmiði að styrkja stjórnun, skýra ábyrgðarsvið og styðja við stefnu háskólans til framtíðar.

Tillaga rektors að nýju skipuriti og breytingu á reglum um Háskólann á Akureyri, nr. 694/2020 miðar að því að breytingarnar taki gildi 1. ágúst 2026.

Háskólaráð samþykkir tillögu rektors um nýtt skipurit fyrir háskólann. Háskólaráð samþykkir jafnframt framlagða tillögu að reglum um breytingar á reglum um Háskólann á Akureyri, nr. 694/2022, með þeim breytingum sem lagðar voru til á fundinum.

Háskólaráð felur rektor að vinna áfram að innleiðingu nýs skipurits í samræmi við framlagða tillögu og tilkynna hlutaðeigandi einstaklingum um niðurlagningar starfa þeirra og uppsagnir ráðningarsamninga. Jafnframt að tilkynna hlutaðeigandi einstaklingum um breytingar á störfum og verksviði sem og tilflutningi verkefna og starfa á milli starfseininga. Enn fremur skal rektor gera aðrar nauðsynlegar ráðstafanir í tengslum við gildistöku nýs skipurits ásamt því að auglýsa þau störf sem eru laus.

2. Önnur mál

Engin önnur mál voru rædd.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 08:26.