489. fundur Háskólaráðs

Fundur var haldinn fimmtudaginn 29. október 2026 í Norðurborg og á Teams kl. kl. 13:30.

Rektor Áslaug Ásgeirsdóttir setti fund kl. 13:30.

Mætt voru auk hennar:

Unnar Jónsson fulltrúi ráðherra
Guðmundur Kristján Óskarsson fulltrúi háskólasamfélagsins
Sigríður Sía Jónsdóttir fulltrúi háskólasamfélagsins
Rakel Rún Sigurðardóttir fulltrúi stúdenta
Ottó Elíasson fulltrúi Háskólaráðs
Bryndís Fiona Ford fulltrúi Háskólaráðs

Einnig mætt:

Sindri S. Kristjánsson lögfræðingur mannauðs- og samskiptasviðs sem ritaði fundargerð

Gestir:

Jón Steindór Árnason sviðsstjóri fjármála og reksturs
Freyr Baldursson verkefnastjóri reikningshalds og fjármálagreininga

Rektor kynnti dagskrá.

1. Fjármál og rekstur

2601068

Jón Steindór Árnason og Freyr Baldursson sátu fund háskólaráðs undir þessum lið.

Fjármál

Jón Steindór og Freyr kynntu rekstrarstöðu háskólans á tímabilinu janúar – september á þessu ári. Að öllu óbreyttu stefnir í að niðurstaða ársins verði neikvæð. Skýringa er fyrst og fremst að leita í uppgjör orlofs í tengslum við dóm í kjölfar dóms Landsréttar í máli nr. 361/2024. Áætlanir ársins gerðu ráð fyrir ákveðnum hallarekstri og þegar áætlun er lögð saman við þetta uppgjör í tengslum við orlof á fasta yfirvinnu er niðurstaðan eins og hún liggur fyrir núna. Uppsafnað eigið fé verður nýtt til að leiðrétta endanlegan rekstrarhalla ársins.

Ákveðnar vísbendingar má sjá í lykiltölum sem gefa tilefni til að hallinn verði ívið minni en útgönguspá gerir ráð fyrir. Þá voru gerð grein fyrir rekstri einstaka eininga – fræðasviða, stjórnsýslu og sértekjueininga.

Undir þessum lið greindi rektor háskólaráði frá fundi ráðherra með rektorum allra háskóla sem fram fór nýverið. Rektor sagði frá hugmyndum ráðherra og háskólaráðuneytisins um framtíð háskólastigsins á Íslandi og vinnu við gerð háskólastefnu. Þá var á þessum fundi greint frá breytingum á fjármögnunarlíkani háskóla sem fyrirhugaðar eru.

Þá upplýsti rektor háskólaráð um þá greiningu sem gerð hefur verið á áhrifum fjárlagafrumvarps 2027 á Háskólann á Akureyri. Ber þar hæst að verð allra reikniflokka hækkar, byggðahlutverk háskólans styrkist, nýr heilbrigðispottur skilar talsverðu, aukning er í framlögum vegna sókn í erlenda rannsóknastyrki, birtingatölfræði eykst, rannsóknarauki og kennsluauki hækkar. Háskólaráð ræddi um fjárlagafrumvarpið og breytingar á fjármögnunarlíkaninu.

2. Skólagjöld

2610098

Jón Steindór Árnason og Freyr Baldursson sátu fund háskólaráðs undir þessum lið.

Rektor lagði fram tillögu að því að hefja innheimtu skólagjalda vegna nemenda með ríkisfang utan EES, að nemendum frá Færeyjum og Grænlandi undanskildum. Tillagan byggir á heimildarákvæði í lögum um opinbera háskóla, nr. 85/2008, eins og þeim var breytt með lögum nr. 63/2026.

Jón Steindór og Freyr Baldursson gerðu grein fyrir forsendum útreikninga á fjárhæðum sem tillagan hefur að geyma og svöruðu spurningu háskólaráðs um tillöguna. Jón Steindór og Freyr véku af fundi háskólaráðs að því loknu.

Háskólaráð ræddi tillöguna ítarlega.

Háskólaráðs samþykkir að hefja innheimtu skólagjalda vegna nemenda með ríkisfang utan EES, að nemendum frá Færeyjum og Grænlandi undanskildum, frá og með skólaárinu 2027-2028. Fjárhæð skólagjalda verði ákvörðuð samkvæmt reiknireglu og forsendum framlagðrar tillögu, án sérstaks aðstöðu- og þjónustugjalds og án afsláttar, á verðlagi ársins 2027. Fjárhæðin verði birt í gjaldskrá háskólans og birt sérstaklega á ytri vef háskólans, áður en umsóknargátt opnar fyrir innritun skólarárið 2027-2028. Gjaldskráin skal uppfærð árlega til samræmis við reiknilíkan menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytisins og kostnaðarþróun.

Háskólaráð samþykkir jafnframt framlagða tillögu að breytingu á reglum fyrir Háskólann á Akureyri, nr. 694/2022.

Sigríður Sía Jónsdóttir óskar bókað:

Ég er sammála þeirri ákvörðun háskólaráðs að tekin verði upp skólagjöld vegna nemenda með ríkisfang utan EES, að nemendum frá Færeyjum og Grænlandi undanskildum. Ég tel hins vegar að stilla eigi þeirri gjaldtöku í hóf eins og nokkur kostur er og hefði kosið að útreiknuð upphæð gjaldanna samkvæmt ákvörðun háskólaráðs hefði falið í sér þann afslátt sem finna mátti í einni útfærslu tillögunnar sem lá fyrir fundinum.

3. Úthlutun rannsóknamissera 2027-2028

2608030

Tekin var fyrir tillaga rannsóknamisserisnefndar að úthlutun rannsóknamissera fyrir skólaárið 2027-2028. Tillagan felur í sér að 10 af 12 umsóknum eru samþykktar og er orðið við þeim óskum um fjölda missera sem óskað er eftir í samþykktum umsóknum.

Háskólaráð samþykkir framlagða tillögu rannsóknamisserisnefndar um úthlutun rannsóknamissera fyrir 2026-2027.

4. Heildarnemendafjöldi haustmisseris 2026

2610094

Rektor kynnti tölur yfir heildarnemendafjölda við háskólann á haustmisseri 2026. Rektor svaraði spurningum háskólaráðs um einstaka þætti í gögnunum sem kynnt voru.

5. Hugverkastefna Háskólans á Akureyri

2610094

Rektor kynnti tillögu að hugverkastefnu fyrir Háskólans á Akureyri. Hugverkastefna er ætlað að skapar skýran ramma um meðferð, vernd og hagnýtingu hugverka sem verða til innan veggja háskólans. Stefnan var unnin í samráði við sérfræðinga, stjórnendur og starfsfólk og skýrir réttindi og skyldur starfsfólks, stúdenta og háskólans, ásamt fyrirkomulagi tekjuskiptingar.

Háskólaráð samþykkir framlagða tillögu að hugverkastefnu fyrir Háskólann á Akureyri.

6. Hraðúttekt Ríkisendurskoðunar

2610094

Lögð fram til kynningar hraðúttekt Ríkisendurskoðunar um fjölda, stærð og stærðarhagkvæmni ríkisstofnana. Í skýrslunni er m.a. fjallað um þróun háskólastofnana og sameiningarmál. Athugasemdir eru gerðar í skýrslunni við ákvörðun háskólaráðs Háskólans á Akureyri um að hætta sameiningarviðræðum við Háskólann á Bifröst.

Háskólaráð ræddi innihald skýrslunnar.

7. Bókfærð mál til samþykktar

  • Breytingar á stjórn FÉSTA | 2608042 Samþykkt

8. Til fróðleiks

  • Vinnustaður þar sem fólk hefur jöfn tækifæri til að hafa áhrif
  • Raunfærnimat í brennidepli í alþjóðlegri heimsókn
  • Ashani Arulananthan lýkur doktorsprófi við Háskólann á Akureyri
  • Ferðamálarannsóknir í brennidepli á alþjóðlegri ráðstefnu
  • 27 kandídatar brautskrást í október 2026
  • „Það er miklu meira við háskólalífið en bara fyrirlestrar og verkefni“
  • Öflugt rannsóknastarf á sviði byggða- og samfélagsmála
  • Rannsaka kynjamun í notkun gervigreindar

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:49.