NR. 251/2026
SAMÞYKKTAR Í HÁSKÓLARÁÐI 26.2.2026
Vefútgáfa síðast uppfærð 19.3.2026
Prentgerð (pdf)
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan
og í PDF skjali gildir PDF skjalið
1. gr. Almennt.
Rannsóknamiðstöð um málefni innflytjenda við Háskólann á Akureyri (RMI) er þverfagleg rannsóknamiðstöð, sem heyrir undir Hug- og félagsvísindasvið, og stofnuð er í þeim tilgangi að efla rannsóknir á innflytjendamálum og tengdum samfélagsbreytingum á Íslandi. Rannsóknamiðstöðin er sett á laggirnar sem viðbragð við samfélagslegum þörfum og áherslum sem fram koma í Hvítbók í málefnum innflytjenda frá árinu 2024 og í samræmi við hlutverk íslenskra háskóla samkvæmt lögum.
2. gr. Hlutverk.
Meginhlutverk rannsóknamiðstöðvarinnar er:
- að stunda og samhæfa fræðilegar rannsóknir í málefnum innflytjenda á Íslandi,
- að styðja við og efla kennslu og leiðsögn í tengslum við rannsóknir í málefnum innflytjenda,
- að koma á fót gagnasafni í málefnum innflytjenda og miðla niðurstöðum í skýrslum, ritum og viðburðum,
- að framkvæma könnun hér á landi með reglubundnu millibili í tengslum við málefni innflytjenda,
- að stuðla að stefnumótun byggðri á traustum gögnum með tillögum og samantektum,
- að standa fyrir fræðilegri ráðstefnu á tveggja ára fresti um rannsóknir í málefnum innflytjenda á Íslandi,
- að taka þátt í og efla samstarf við hagsmunaaðila, þar á meðal ráðuneyti, sveitarfélög, félagasamtök og erlenda samstarfsaðila í rannsóknum,
- að styðja doktorsnema og nýdoktora á sviði innflytjendarannsókna,
- að efla samfélagsumræður, vitund og skilning á málefnum innflytjenda á Íslandi.
Að öðru leyti mótar stjórn rannsóknamiðstöðvarinnar starfsemi hennar.
3. gr. Stjórn.
Stjórn Rannsóknamiðstöðvar um málefni innflytjenda er skipuð fjórum fulltrúum. Stjórn Hug- og félagsvísindasviðs HA tilnefnir þrjá fulltrúa í stjórn rannsóknamiðstöðvarinnar auk eins varamanns og forseti fræðasviðs skipar fulltrúana í stjórn. Forseti fræðasviðs skipar í stjórnina að fengnum tilnefningum. Þá skal forseti fræðasviðs skipa einn fulltrúa frá samstarfsstofnunum eða hagsmunaaðilum sem tengist hlutverki rannsóknamiðstöðvarinnar. Þessi fulltrúi skal skipaður í samráði við viðkomandi samstarfsaðila.
Fulltrúar í stjórn rannsóknamiðstöðvarinnar eru skipaðir til tveggja ára í senn og stjórn skipar sér formann úr röðum stjórnarmanna.
Stjórnin mótar stefnu rannsóknamiðstöðvarinnar og setur henni starfsreglur eftir því sem þurfa þykir.
4. gr. Stjórnarfundir.
Stjórnarfundi skal halda eigi sjaldnar en einu sinni á misseri. Skylt er að boða stjórnarfund óski tveir eða fleiri stjórnarmenn þess. Falli atkvæði jöfn á slíkum fundi ræður atkvæði formanns. Stjórnin heldur fundargerðir þar sem ákvarðanir hennar skulu skráðar. Fundargerðir skulu staðfestar í lok fundar, en eigi síðar en á næsta fundi stjórnar og skulu vistaðar í skjalakerfi háskólans.
5. gr. Aðstaða.
Háskólinn á Akureyri sér rannsóknamiðstöðinni fyrir starfsaðstöðu, svo sem húsnæði, nauðsynlegum búnaði og tækniaðstoð. Samstarfsstofnanir geta einnig eftir atvikum lagt til aðstöðu eða stuðning samkvæmt samkomulagi.
6. gr. Ráðning starfsfólks.
Ráðning starfsfólks við rannsóknamiðstöðina ræðst af fyrirliggjandi fjárheimildum háskólans, styrkjum og samþykktum fjárhagsáætlunum. Rannsóknamiðstöðin getur einnig hýst doktorsnema og fræðimenn frá innlendum eða erlendum háskólum.
Akademískir starfsmenn tengdir rannsóknamiðstöðinni eru skipaðir samkvæmt reglum HA og geta verið í hlutastarfi eða í starfi við aðrar stofnanir. Stöður eru almennt veittar til fimm ára í senn. Forseti Hug- og félagsvísindasviðs ber ábyrgð á ráðningum, á grundvelli tillagna stjórnar.
Dómnefnd HA metur hæfi umsækjenda um akademískar stöður við rannsóknamiðstöðina samkvæmt þeim reglum sem gilda um ráðningu í akademískar stöður við HA. Dómnefndin ákveður hæfi umsækjenda til þess að gegna stöðu lektors, dósents eða prófessors. Sá sem hlýtur slíkan hæfisdóm skal njóta sambærilegra réttinda og gegna sambærilegum skyldum og lektor, dósent og prófessor, eftir því sem við á, þótt viðkomandi sé ráðinn í aðalstarf við aðra stofnun, enda sé slíkt í samræmi við lög, reglugerðir og kjarasamninga samkvæmt reglum sem gilda um ráðningu. Um framgang gilda sömu reglur fyrir þessar stöður og gilda um akademíska starfsmenn HA. Að öðru leyti taka réttindi og skyldur mið af gildandi kjarasamningi viðkomandi starfsmanns og reglna Háskólans á Akureyri.
7. gr. Reglur um akademískar nafnbætur.
Fræðimenn sem tengjast Rannsóknamiðstöð um málefni innflytjenda geta sótt um mat á hæfi til að hljóta akademíska nafnbót við rannsóknamiðstöðina (lektor, dósent, prófessor) í samræmi við gildandi reglur HA. Rektor veitir slíkar nafnbætur að fengnu áliti dómnefndar Háskólans á Akureyri. Akademísk nafnbót er veitt til fimm ára en fellur niður láti starfsmaður af störfum við rannsóknamiðstöðina.
8. gr. Rannsóknir við rannsóknamiðstöðina.
Rannsóknir við Rannsóknamiðstöð um málefni innflytjenda við Háskólann á Akureyri eru vistaðar við Hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri. Birtingar og niðurstöður skulu tilgreina viðkomandi fræðimann, Háskólann á Akureyri og samstarfsstofnanir.
Rannsóknamiðstöðin skal árlega gefa skýrslu til stjórnar Hug- og félagsvísindasviðs þar sem fram kemur yfirlit yfir starfsemi stofnunarinnar á liðnu ári, þ.m.t. upplýsingar um rannsóknir. Þá ber rannsóknamiðstöðinni að skipuleggja reglulegar málstofur og árlega kynningu á rannsóknaverkefnum sem unnin eru við miðstöðina.
9. gr. Fjármál, fjárhagsáætlun, reikningsár, ársreikningur o.fl.
Tekjur Rannsóknamiðstöðvar um málefni innflytjenda geta verið:
- opinber fjármögnun,
- innlendir og alþjóðlegir rannsóknastyrkir,
- tekjur af rannsóknum og ráðgjöf,
- aðrar tekjur, t.d. gjafir og styrkir.
Reikningshald rannsóknamiðstöðvarinnar skal vera hluti af reikningshaldi Háskólans á Akureyri. Stjórnin undirbýr og samþykkir árlega rekstrar- og fjárhagsáætlun. Verkefni sem unnin eru samkvæmt beiðni þurfa samþykki stjórnar rannsóknamiðstöðvarinnar.
10. gr. Gildistaka.
Reglur þessar, sem samþykktar voru í háskólaráði 26. febrúar 2026, eru settar á grundvelli heimildar í 11. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og 26. gr. reglna nr. 694/2022 fyrir Háskólann á Akureyri. Reglurnar öðlast þegar gildi.
11. gr. Endurskoðun.
Reglur þessar skal endurskoða í ljósi fenginnar reynslu innan þriggja ára frá gildistöku.
Háskólanum á Akureyri, 26. febrúar 2026.
Áslaug Ásgeirsdóttir rektor.