Viðurkenning og mat á fyrri reynslu í háskólamenntun á Vestur-Balkanskaga

Um verkefnið

APEL – WB er alþjóðlegt Erasmus+ uppbyggingarverkefni á sviði háskólamenntunar (ERASMUS-EDU-2025-CBHE-STRAND-3), fjármagnað af framkvæmdastofnun Evrópusambandsins á sviði menntunar og menningar (European Education and Culture Executive Agency, EACEA).

Verkefnið byggir á meginreglum Lissabon-samþykktarinnar um viðurkenningu prófgráða (1997), þar sem lögð er áhersla á mikilvægi þess að viðurkenna nám sem aflað er utan formlegs skólastarfs, svo sem í gegnum starf, sjálfsnám og lífsreynslu. Þrátt fyrir að evrópskar leiðbeiningar og verkfæri séu til staðar er viðurkenning og mat á fyrra námi (RAPL) lítið nýtt á Vestur-Balkanskaga.

Markmið verkefnisins er að festa RAPL í sessi sem kerfisbundinn þátt í háskólamenntun á svæðinu og stuðla þannig að auknu aðgengi og jöfnum tækifærum til náms. Verkefnið er í samræmi við forgangsröðun Evrópusambandsins og ríkja Vestur-Balkanskaga um sjálfbæran hagvöxt og þekkingardrifin hagkerfi og byggir á vaxandi áherslu á hæfnimiðuðu námi í háskólum. Lagt er til heildstætt ramma¬verk sem byggir á viðurkenndum evrópskum fyrirmyndum.

Með stuðningi sérfræðikunnáttu Háskólans á Akureyri og Háskólans í Tallinn miðar verkefnið að því að efla símenntun og bæta hæfni vinnuaflsins. Heildarmarkmið verkefnisins er að koma á fót skilvirku og varanlegu kerfi innan háskóla fyrir viðurkenningu og veitingu eininga á grundvelli fyrri reynslunáms, í samræmi við viðmið Evrópska háskólasvæðisins.

Rannsakendur við HA

Samstarfsaðilar

  • Gæðastofnun háskólamenntunar í Albaníu (Agency for Quality Assurance in Higher Education – ASCAL)
  • Menntamálaráðuneyti Lýðveldisins Albaníu (ME)
  • Miðstöð upplýsinga og viðurkenningar prófgráða í háskólamenntun, Mostar, Bosníu og Hersegóvínu (CIP)
  • Mennta-, vísinda-, tækni- og nýsköpunarráðuneyti Lýðveldisins Kósóvó (MESTI)
  • LOGOS University College (LOGOS)
  • Háskólinn í Shkodra „Luigj Gurakuqi“ (Unishk)
  • Háskólinn í Pristina (UP)
  • RIT Kosovo (A.U.K) College (RITK)
  • Háskólinn á Akureyri (UNAK)
  • Háskólinn í Tallinn (TLN)
  • Háskólinn í Sarajevo (UNSA)
  • Háskólinn í Patras (UPAT)