CDRP

Um verkefnið

Grænland og Færeyjar standa frammi fyrir fjölbreyttum og ófyrirsjáanlegum áhættuþáttum sem tengjast meðal annars stjórnmálum og landfræðilegri stöðu. Á sama tíma hafa forsendur almannavarna, áhættustjórnunar og viðnámsþróttar samfélaganna lítið verið rannsakaðar.

CDRP (Civil Defence and Risk Planning in Greenland and the Faroe Islands) rannsakar hvernig stjórnvöld á Grænlandi og í Færeyjum skipuleggja almannavarnir og viðbúnað á tímum óvissu og breytinga.

Verkefnið byggir meðal annars á aðgangi að ferlinu við gerð þjóðaráhættumats í Færeyjum. Það gerir rannsakendum kleift að fylgjast með mótun stefnu um almannavarnir og viðbúnað og bera hana saman við nálganir á Grænlandi.

Markmiðið er að efla stefnumótun og áhættustjórnun í báðum löndum og leggja jafnframt af mörkum til fræðilegrar umræðu um stjórnun á hættutímum og áhættustjórnun í litlum eyríkjum.

Verkefninu er stýrt af Rógva Olavsyni við Fróðskaparsetur Færeyja.

Rannsakendur

  • Rógvi Olavson – Fróðskaparsetur Færeyja
  • Maria Ackrén – Stofnun Vilhjálms Stefánssonar

Nánari upplýsingar