Upplifun sjúklinga af meðferð flogaveiki á Íslandi

Taktu þátt í rannsókninni

Ert þú með flogaveiki eða umönnunaraðili einstaklings með flogaveiki? Þá getur þú tekið þátt í rannsókninni með því að svara könnun um reynslu af greiningu og meðferð flogaveiki á Íslandi.

Í lok könnunarinnar getur þú einnig gefið kost á þér í viðtal til að segja nánar frá reynslu þinni. Þátttaka í viðtali er valfrjáls

Taktu þátt í rannsókninni

Um verkefnið

Flogaveiki er einn algengasti taugasjúkdómur í heimi og getur haft mikil áhrif á heilsu og lífsgæði. Með réttri lyfjameðferð er hægt að ná stjórn á flogum hjá um 70% sjúklinga, en ýmsar hindranir geta haft áhrif á aðgengi að greiningu og meðferð.

Á Íslandi getur búseta skipt máli þegar kemur að aðgengi að sérhæfðri heilbrigðisþjónustu. Dreifð byggð, langar vegalengdir, veður og takmarkaðar almenningssamgöngur geta gert fólki á landsbyggðinni erfiðara að sækja sérhæfða þjónustu.

Rannsóknin er hluti af AEGEUS-verkefninu og miðar að því að greina helstu áskoranir sem fólk með flogaveiki og umönnunaraðilar þess mæta. Þar er meðal annars horft til tafa á greiningu, aðgengis að viðeigandi greiningarbúnaði og annarra hindrana í greiningar- og meðferðarferlinu.

Rannsóknin fer fram í tveimur áföngum. Fyrst er lögð fyrir könnun og þátttakendum í henni býðst síðan að taka þátt í viðtali.

Þátttakendur verða einnig kynntir fyrir nýju EEG-ómskoðunartæki (EEG-US) og mögulegum kostum þess samanborið við hefðbundnar greiningaraðferðir. Kannað verður viðhorf þeirra til tækninnar, meðal annars hvort þeir væru tilbúnir að nota hana og hvort þeir telji að hún gæti bætt greiningu og meðferð flogaveiki.

Rannsakendur

Samstarfsaðilar