GRASP

Um verkefnið

GRASP (Greenland's Alliance Dilemma Amidst Great Power Struggles – A Comparison with Arctic and Non-Arctic States and Regions) rannsakar samspil efnahagslegra hagsmuna og öryggissjónarmiða á Grænlandi á tímum aukinnar samkeppni stórvelda á norðurslóðum.

Rannsóknin beinir sjónum að þeim áskorunum sem geta skapast þegar efnahagslegir og öryggistengdir hagsmunir fara ekki saman, meðal annars í samskiptum Grænlands við Bandaríkin, Rússland og Kína. Markmið og hagsmunir ríkja á norðurslóðum eru greindir út frá sjónarhorni alþjóðastjórnmála og stjórnmálahagfræði.

Staða Grænlands er jafnframt borin saman við Álandseyjar, Færeyjar og Ísland. Með samanburðinum er leitast við að varpa ljósi á sambærilegar áskoranir og draga fram lærdóm sem gæti nýst Grænlandi í samskiptum á alþjóðavettvangi.

Verkefnið er leitt af Nasiffik – Centre for Foreign & Security Policy við Ilisimatusarfik/Háskólann á Grænlandi.

Rannsakendur

  • Rasmus Leander Nielsen – aðalrannsakandi, Nasiffik, Ilisimatusarfik/Háskólinn á Grænlandi
  • Maria Ackrén – rannsakandi, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar

Nánari upplýsingar