PRESAFE

Tímabil: 2026–2029 · Fjármögnun: Interreg NPA

Um verkefnið

Á norðlægum og dreifbýlum svæðum getur aðgengi að heilbrigðisþjónustu verið takmarkað. PRESAFE er alþjóðlegt rannsóknarverkefni sem skoðar hvernig lyfjaávísanir hjúkrunarfræðinga geta stuðlað að öruggri, sjálfbærri og aðgengilegri heilbrigðisþjónustu á þessum svæðum.

Í verkefninu er sjónum beint að fyrirkomulagi lyfjaávísana, menntun og starfsheimildum hjúkrunarfræðinga og samstarfi heilbrigðisstétta. Með því að bera saman reynslu og regluverk á þátttökusvæðunum er markmiðið að afla þekkingar sem nýtist við þróun heilbrigðisþjónustu og stefnumótun.

Eitt af meginmarkmiðum verkefnisins er að þróa, prófa og innleiða líkan fyrir fjarviðtöl hjá hjúkrunarfræðingum með lyfjaávísunarheimildir.

Verkefnið er styrkt af Interreg Northern Periphery and Arctic (NPA) áætluninni og tekur Háskólinn á Akureyri þátt í því fyrir hönd Íslands. Styrkur NPA til þátttöku HA nemur um 30 milljónum króna. Við bætist mótframlag háskólans, aðallega í formi vinnuframlags rannsakenda.

Verkefnisnúmer: NPA1000332

Rannsakendur

Samstarfsaðilar

Umfjöllun

Nánari upplýsingar