Rektorar háskóla hittust í byrjun maí til að efla samstarf og ræða sameiginleg verkefni og áskoranir
Net háskóla í smáríkjum og smærri landsvæðum (NUSCT) hélt 8. árlega fund rektora nú í byrjun maí. Fundurinn var haldinn í Háskólanum í Svartfjallalandi (e. University of Montenegro) og komu þar saman rektorar og stjórnendur frá 9 af 12 aðildarskólum og voru tveir í streymi.
Fundirnir skapa stefnumarkandi vettvang fyrir háskólarektora úr smærri háskólakerfum til að ræða sameiginlegar áskoranir, miðla reynslu og skilgreina forgangsverkefni fyrir áframhaldandi þróun NUSCT. Fundurinn var formlega settur af prófessor Vladimir Božović, PhD, rektor Háskólans í Svartfjallalandi, sem lagði áherslu á mikilvægi alþjóðlegs akademísks samstarfs fyrir háskóla í smáríkjum og smærri landsvæðum. Einnig ávarpaði prófessor Savo Marković, PhD, rektor Háskólans „Mediterranean“ í Podgorica, fundargesti.

Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri, sem jafnframt er forseti NUSCT samstarfsins, lagði áherslu á áframhaldandi mikilvægi NUSCT sem trausts vettvangs fyrir samtal og samstarf. Hún benti á árangur netsins hvað varðar skipti starfsfólks og nemenda, stofnanasamstarf og sameiginlegr verkefni. Hún undirstrikaði jafnframt þörfina á að efla enn frekar samstarf á sviði rannsókna, nýsköpunar og stefnumótunar.
Helstu umræðuefni og niðurstöður
Á fundinum áttu rektorar ítarlegar umræður um fjölda stefnumarkandi málefna og sameiginlegra hagsmuna, þar á meðal:
- Stjórnarhætti háskóla, sjálfræði og fjármögnun, einkum í smáríkjum þar sem háskólar eru oft undir sterkum pólitískum og efnahagslegum áhrifum.
- Nýjungar í kennslu og námi, með áherslu á gráður kenndar á ensku, möguleika á blönduðum nemendaskiptum, sameiginleg netnámskeið og þróun örgráða (micro-credentials) til að bregðast við örum samfélagslegum breytingum og breyttum þörfum nemenda.
- Rannsóknasamstarf, þar á meðal áform um stofnun vinnuhóps NUSCT um sameiginlegar rannsóknir, doktors- og nýdoktorsverkefni, gestafræðikerfi og aukið samstarf í doktorsnámi.
- Gervigreind, stafræn kerfi og netöryggi, þar sem bæði voru rædd tækifæri og áskoranir gervigreindar í háskólastarfi og mikilvægi þess að stefnur aðildarskóla samræmist stefnu NUSCT um háskólamenntun og gervigreind.
- Sýnileiki og miðlun, m.a. samræmd samskipti, samnýting gagna um hreyfanleika og fjármögnun og sameiginlegar fréttatilkynningar til að styrkja sameiginlega rödd NUSCT.
Rektorar ítrekuðu stefnumarkandi mikilvægi NUSCT sem nets sem gerir háskólum í smáríkjum og smærri landsvæðum kleift að vinna saman fremur en að keppa, auka alþjóðlega sýnileika sinn og takast sameiginlega á við kerfislægar áskoranir sem einstakar stofnanir ráða ekki við einar sér.
Framtíðarverkefni
Á fundinum var einnig farið yfir árangur fyrstu fræðiráðstefnu NUSCT, sem haldin var í Færeyjum í fyrra, og lýst yfir sterkum stuðningi við að halda þessari ráðstefnuhefð áfram. Rektorarnir samþykktu áform um sameiginlega skipulagða NUSCT-ráðstefnu árið 2027, sem Háskólinn í Andorra og Háskólinn á Álandseyjum munu halda sameiginlega. Ráðstefnan verður þverfagleg, með möguleika á að bjóða utanaðkomandi sérfræðingum.
Jafnframt var staðfest að 9. árlegi rektorafundur NUSCT verði haldinn í maí 2027 í boði Háskólans á Álandseyjum.
NUSCT flytur Háskólanum í Svartfjallalandi einlægar þakkir fyrir að hýsa 8. rektorafundinn og fyrir framlag sitt til að efla samtal og samstarf milli háskóla í smáríkjum og smærri landsvæðum. Fundurinn í Podgorica undirstrikaði virkt hlutverk gestgjafans í alþjóðlegu akademísku samstarfi og svæðisbundinni þróun.
Um NUSCT
Net háskóla í smáríkjum og smærri landsvæðum (NUSCT) hefur það að markmiði að efla samstarf á sviði menntunar, rannsókna og nýsköpunar, jafnframt því að stuðla að akademísku frelsi, sjálfræði stofnana og sjálfbærri þróun í smærri háskólakerfum.
Smellið hér til að skoða vefsíðu skrifstofu NUSCT.
Einnig er hægt að senda tölvupóst, secretariat@nusct.net