Heilbrigðislausnir framtíðarinnar í brennidepli

Sjónaukinn 2026, árleg ráðstefna Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri haldin í næstu viku
Heilbrigðislausnir framtíðarinnar í brennidepli

Ráðstefnan Sjónaukinn 2026 verður haldin við Háskólann á Akureyri dagana 19. og 20. maí næstkomandi. Undir yfirskriftinni „Lærdómur, lausnir og leiðin áfram“ mætast sérfræðingar, fræðafólk og stúdentar til að varpa ljósi á þær breytingar og framfarir sem hafa orðið síðustu áratugina í þekkingu, kennslu og lausnum innan heilbrigðisvísinda og starfa í heilbrigðisgeiranum.

Frá áskorunum til tækifæra

Áhersla ráðstefnunnar í ár endurspeglar hröð vísindaleg og tæknileg skref sem tekin hafa verið til að bæta lífsgæði. Meðal helstu viðfangsefna eru stafrænar lausnir og fjarheilbrigði og hvernig nýjustu hugbúnaðarlausnir og fjarþjónusta brúa bilið á milli sjúklinga og sérfræðinga, óháð búsetu.

Þá er geðheilbrigði í forgangi og hvernig nýjar nálganir í stuðningi og meðferð mæta vaxandi þörf í samfélaginu, þar á meðal að nýta hermikennslu við þjálfun heilbrigðisfólks í þessum málaflokki. Einnig verður fjallað um offitu og lífsstílsbreytingar og samþættar lausnir sem horfa til bæði forvarna og meðferðar í flóknu nútímaumhverfi.

Vettvangur nýsköpunar

Sjónaukinn er einnig staður til að ræða tækifæri og er vettvangur til umræðu og eflingar nýsköpunar á sviði heilbrigðisþjónustu. Seinni dagur ráðstefnunnar er helgaður lokaverkefnum meistaranema, þar sem framtíðarleiðtogar í heilbrigðisvísindum kynna rannsóknir sínar á sviðum eins og næringu aldraðra, þrautseigju og nýrri tækni.

„Markmiðið er að skapa hvetjandi umræðu og varpa ljósi á þær framfarir sem munu móta heilbrigðisþjónustu næstu áratuga. Við erum stolt af því að standa að þessari ráðstefnu árlega og skapa þannig vettvang til samtals og yfirfærslu þekkingar,“ segir Hafdís Skúladóttir, deildarforseti Hjúkrunarfræðideildar HA.

Ráðstefnan er öllum opin og ekkert ráðstefnugjald er innheimt, en nauðsynlegt er að skrá sig á vef Háskólans á Akureyri.

Smelltu hér til að nálgast frekari upplýsingar og skrá þig.