Sjónaukinn 2026: Lærdómur, lausnir og leiðin áfram

19.-20. maí 2026
Árleg ráðstefna Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviðs

SKRÁÐU ÞIG NÚNA – VIÐ HLÖKKUM TIL AÐ EIGA FRÆÐANDI TÍMA SAMAN!

Sjónaukinn, árleg ráðstefna Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri, verður haldin í Háskólanum á Akureyri dagana 19. og 20. maí 2026. Þema ráðstefnunnar í ár er Lærdómur, lausnir og leiðin áfram.

Markmið með ráðstefnunni er að:

  • Varpa ljósi á þær breytingar og framfarir sem hafa átt sér stað síðustu áratugina í þekkingu, kennslu og lausnum innan heilbrigðisvísinda og starfa í heilbrigðisgeiranum.
  • Skapa vettvang fyrir umræðu og hvetja til frekari þróunar og nýsköpunar innan heilbrigðisvísinda.

Kall eftir ágripum

Kallað er eftir ágripum fyrir Sjónaukann 2026

Áhugasömu fræðafólki, fagfólki og öðrum sérfræðingum á sviði heilbrigðisvísinda og tengdum fræðasviðum og þvert á fræðasvið er velkomið að senda inn ágrip.

Lokað verður fyrir innsendingu ágripa 8. apríl 2026

Smelltu hér til að senda inn ágrip

Dagskrá

Dagskráin býður upp á þekkta lykilfyrirlesara sem hafa eigin sýn á það sem áður var, þeim lausnum sem við búum yfir í dag og þeirri stefnu sem við getum sameiginlega tekið til að finna leiðina áfram. Lykilfyrirlesarar verða tilkynntir fljótlega.

Erindi frá fjölbreyttum sviðum heilbrigðisþjónustunnar munu tryggja fjölbreyttra og fræðandi dagskrá:

  • Fyrri daginn munu fara fram erindi aðalfyrirlesara ásamt fjölbreyttum og áhugaverðum erindum sem öll taka á þema ráðstefnunnar. Öll ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
  • Seinni daginn fara fram erindi aðalfyrirlesara ásamt fjölbreyttu úrvali verkefnakynninga, þar sem meistaranemar kynna lokaverkefnin sín á sviði heilbrigðisvísinda.

Skráning

  • Ekkert ráðstefnugjald er á ráðstefnuna og öll eru velkomin.
  • Þátttakendur greiða sjálfir ferðakostnað, gistingu og mat.
  • Mikilvægt er að þátttakendur skrái sig á ráðstefnuna.

Smelltu hér til að skrá þig á Sjónaukann

Nánari upplýsingar

Hafið samband við Jette Jörgensen Mebrouk, lektor við Hjúkrunarfræðideild og formann Sjónaukans í ár í gegnum netfangið jette@unak.is eða Áslaugu Lind Guðmundsdóttur, verkefnastjóra í netfangið aslaug@unak.is fyrir frekari upplýsingar.

Við hlökkum til að sjá þig á sjónaukanum 2026!