Steingrímur Jónsson, prófessor við Auðlindadeild, ræðir leyndardóma hafsins, hafstrauma og breytingar í heimshöfunum í tveimur þáttum af Þú veist betur á Rás 2
Sjórinn þekur um 71% af yfirborði jarðar og er að meðaltali um fjögurra kílómetra djúpur. Samt er stór hluti þessa risastóra kerfis enn lítt rannsakaður.
Hvaðan kom vatnið í hafinu? Af hverju er sjórinn saltur? Hvað drífur Golfstrauminn og hvernig verða breytingar á borð við hlýnun og súrnun sjávar?
Þessar og fjölmargar aðrar spurningar eru til umræðu í tveimur þáttum af Þú veist betur á Rás 2 þar sem Atli Már Steinarsson ræðir við Steingrím Jónsson prófessor við Auðlindadeild og sérfræðing hjá Hafrannsóknastofnun.
Hvað drífur þetta risastóra kerfi?
Í fyrri þættinum er farið yfir grunneðlisfræði hafsins og þau öfl sem halda þessu gríðarstóra kerfi gangandi. Steingrímur fjallar meðal annars um uppruna hafsins, seltu sjávar og þann mikla þrýsting sem ríkir í hafdjúpunum.
Hafstraumarnir koma einnig við sögu. Steingrímur útskýrir hvað drífur Golfstrauminn, hvernig snúningur jarðar hefur áhrif á stefnu hafstrauma og hvers vegna djúpsjávarmyndun við Ísland er sérstök á heimsvísu.
Þá er rætt um hvernig orka og næringarefni flæða um heimshöfin og hvers vegna stór svæði á hafsbotninum eru í raun flatar eyðimerkur.
Þegar hafið breytist
Í seinni þættinum er sjónum beint að breytingum í hafinu. Heimshöfin eru bæði að hlýna og súrna en þótt rekja megi hvort tveggja til aukins koltvísýrings í andrúmsloftinu er um ólík ferli að ræða.
Ein af stóru áskorununum er að greina á milli náttúrulegs breytileika í hafinu og langtímabreytinga af mannavöldum. Í því samhengi rifjar Steingrímur meðal annars upp síldarbrestinn árið 1965 og þær miklu náttúrulegu sveiflur sem geta átt sér stað í vistkerfi sjávar.
Hversu vel þekkjum við hafið?
Saga hafrannsókna kemur einnig við sögu, meðal annars fyrsti stóri vísindalegi leiðangurinn til rannsókna á heimshöfunum á 19. öld og hversu mikið þekking okkar á hafinu hefur aukist síðan.
En þrátt fyrir framfarir er margt enn óþekkt.
Í lok samtalsins er sjónum sérstaklega beint að hafinu við Íslandi, sérstöðu þess í djúpsjávarmyndun heimshafanna og mikilvægi hafrannsókna fyrir þjóð sem á svo mikið undir auðugu lífríki sjávar.