Netöryggi og rauðu flöggin

Opið hús Góðvina HA, HSN, SAk, Félags eldri borgara á Akureyri og Virk efri ár - Akureyrarbær
Netöryggi og rauðu flöggin

Á fimmta tug gesta sóttu fyrsta Opna húsið fyrir almenning á vegum Góðvina HA, HSN, SAk, Félagi eldri borgara á Akureyri og Virk efri ár - Akureyrarbæ, sem fram fór í húsakynnum HA mánudaginn 16. febrúar. Umfjöllunarefnið var netöryggi og hvað ber að varast til þess að koma í veg að óboðnir gestir fari inn í heimilistölvuna og valdi þar skaða. Það var greinilegt að þetta efni brennur á mörgum sem vildu leita sér fróðleiks um hvernig hægt væri að umgangast netmiðla á öruggan hátt.

Skúli Bragi Geirdal frá Netvís, sem er undir Fjölmiðlanefnd, var fyrsti gestur í þessarar fyrirlestraraðar. Hann er Akureyringur í húð og hár og er meðal þeirra mörgu sem hafa útskrifast sem fjölmiðlafræðingar frá Háskólanum á Akureyri. Hann kom meðal annars inn á þær fjölmörgu leiðir sem óboðnir gestir nota til þess að reyna að misnota fólk. Hann kynnti til sögunnar það sem hann kallaði Rauð flögg sem eru ætluð til þess að vekja grun fólks um að eitthvað gruggugt sé í gangi.

„Netsvik snúast um að blekkja fólk þannig að áherslan í fræðslunni verður að vera á valdeflingu þátttakenda. Hvernig komum við auga á netsvik og hvað getum við gert til að bregðast við? Mikilvægast er að efla sjálfsöryggi fólks í stafrænum veruleika, þannig verðum við örugg og getum hjálpað hvort öðru að auka almennt öryggi á netinu,“ segir Skúli.


Vel var mætt á Opið hús. Hér er Sigrún Stefánsdóttir, formaður Góðvina að bjóða gesti velkomna og segja frá Góðvinum

Opið hús er öllum opið og verða einu sinni í mánuði fram að sumri. Næsti fyrirlestur verður 30. mars kl. 14.00. Þar mun Olga Ásrún Stefánsdóttir, aðjúnkt við Iðjuþjálfunarfræðideild Háskólans á Akureyri segir frá rannsókn sinni sem fjallar um þegar eldri makar í hjónabandi þurfa að flytja að heima á hjúkrunarheimili vegna alvarlegrar vitrænnar skerðingar. Smelltu hér til að sjá nánari upplýsingar um næsta Opið hús.

Með samstarfsverkefninu Opið hús vilja Góðvinir Háskólans á Akureyri opna háskólann enn frekar fyrir almenningi og efla starfsemi Góðvina, sem verða tuttugu og fimm ára á næsta ári. Samtökin hafa það hlutverk að stuðla að vexti HA og vekja athygli á framúrskarandi starfi stúdenta skólans. 

Opið hús er öllum opið og er ókeypis.