34th Nordic Symposium on Tourism and Hospitality Research

6.- 8. október 2026
Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF) stendur að undirbúningi alþjóðlegu ferðamálaráðstefnunnar 34th Nordic Symposium on Tourism and Hospitality Research sem haldin verður í Reykjavík 6-8. október 2026 á Reykjavik Natura.
Ráðstefnan er hluti af starfi samtakanna Nordic Society for Tourism and Hospitality Research og er vettvangur fræðilegrar umræðu vísindamanna og þróunar á sviði ferðaþjónustu í Evrópu. Innan samtakanna eru helstu sérfræðingar á sviði ferðamálarannsókna á Norðurlöndunum. Þar á meðal vísindafólk, ráðgjafar, opinberar stofnanir og framhaldsnemar. RMF situr í stjórn samtakanna fyrir Íslands hönd.
 
Ráðstefnan er haldin á hverju hausti og skiptast Norðurlandaþjóðirnar á um að halda hana. Þetta verður í 34. sinn sem hún er haldin og í 5. sinn sem RMF skipuleggur ráðstefnuna. Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni er Tourism in a Changing World: An Active Agent for Good?
 
Nú þegar eru skráningar yfir 170 og skráning er enn í fullum gangi.