7. Sjálfbærniráðstefnan

<span class="month"> 9</span>apr. <span class="time">kl. 09:00-17:00</span>
Árleg alþjóðleg ráðstefna um sjálfbærni og umhverfismál við Háskólann á Akureyri

Sameinum rannsóknir, hugmyndir og aðgerðir í þágu sjálfbærrar framtíðar

Umhverfisráð Háskólans á Akureyri býður rannsakendum, stúdentum og öllum sem hafa áhuga á sjálfbærni að taka þátt í 7. sjálfbærniráðstefnu Háskólans á Akureyri þann 9. apríl 2027.

Á ráðstefnunni koma saman rannsakendur og sérfræðingar frá Íslandi og öðrum löndum til að miðla þekkingu, ræða umhverfisáskoranir og leita lausna sem stuðla að sjálfbærari framtíð.

Á dagskrá verða rannsóknarerindi, veggspjaldakynningar og sérstök málstofa um sjálfbæra háskóla.

Taktu þátt á Akureyri eða í gegnum netið. Þátttaka er ókeypis og ráðstefnan fer fram á ensku.

Mikilvægar dagsetningar

  • 14. janúar 2027 – Skilafrestur ágripa
  • 14. janúar 2027 – Umsóknarfrestur um sjálfbærniverðlaun Stefánssonar
  • 7. apríl 2027 – Skráningarfrestur
  • 9. apríl 2027 – Ráðstefnan fer fram

Óskað eftir ágripum

Rannsakendur, stúdentar og sérfræðingar eru hvattir til að senda inn ágrip fyrir erindi eða veggspjaldakynningar um sjálfbærni og áskoranir í umhverfismálum.

Skilafrestur ágripa: 14. janúar 2027

SENDA INN ÁGRIP

Viðfangsefni og sérstök málstofa

Tekið er á móti ágripum um fjölbreytt viðfangsefni, meðal annars:

  • Áhrif loftslagsbreytinga, mótvægisaðgerðir og aðlögun
  • Samdrátt í losun koltvísýrings (CO₂) og aðferðir við kolefnisjöfnun
  • Úrgangsstjórnun
  • Verndun hafsins og lífríkis þess
  • Samskipti manns og umhverfis á norðurslóðum

Sérstaklega er óskað eftir rannsóknum sem tengjast norðurslóðum, en rannsóknir sem hafa alþjóðlega skírskotun eru einnig velkomnar.

Sérstök málstofa: Sjálfbærir háskólar

Á ráðstefnunni verður sérstök málstofa um sjálfbæra háskóla (Sustainable Universities), skipulögð af SAFER-samstarfsneti Háskóla norðurslóða (University of the Arctic).

Ritrýni og birting ágripa

Öll innsend ágrip fara í ritrýni. Samþykkt ágrip sem standast ritrýni verða birt í fræðitímaritinu Nordicum Mediterraneum.

Skráning

  • Þátttaka er ókeypis og öllum er velkomið að taka þátt, hvort sem er á staðnum eða í gegnum netið.
  • Vinsamlegast skráðu þig fyrir fram. Skráning auðveldar skipulag veitinga og hjálpar okkur að draga úr matarsóun.
  • Í skráningarforminu er einnig hægt að senda inn ágrip eða lýsa yfir áhuga á þátttöku sem fyrirlesari, veggspjaldakynnir, sýnandi eða styrktaraðili.

Skráningarfrestur: 7. apríl 2027

SKRÁNING Á RÁÐSTEFNUNA

Sjálfbærniverðlaun stúdenta

50.000 kr. | Viðurkenning fyrir rannsóknir stúdenta á sviði sjálfbærni

Háskólinn á Akureyri veitir sjálfbærniverðlaun Stofnunar Vilhálms Stefánssonar í þriðja sinn á ráðstefnunni árið 2027. Verðlaununum er ætlað að vekja athygli á rannsóknum stúdenta sem tengjast sjálfbærni, umhverfismálum eða loftslagsbreytingum.

Umsóknarfrestur: 14. janúar 2027

Hverjir geta sótt um?

Verðlaunin eru opin stúdentum úr öllum deildum Háskólans á Akureyri sem eru í námi við háskólann eða hafa brautskráðst á árunum 2025–2027.

Umsækjendur þurfa að skila inn lokaritgerð sem tengist sjálfbærni, umhverfismálum eða loftslagsbreytingum. Ritgerðin þarf hvorki að vera fullunnin né hafa fengið einkunn þegar sótt er um.

Hvernig sæki ég um?

  1. Skráðu þig á ráðstefnuna (opnast í nýjum flipa) .
  2. Sendu lokaritgerðina í tölvupósti á yvonne@unak.is.

Verðlaunahöfum verður boðið að kynna rannsóknir sínar á ráðstefnunni.

Ekki þarf að senda inn ágrip til að sækja um verðlaunin. Viljir þú hins vegar kynna rannsóknina þína á ráðstefnunni, óháð því hvort þú hlýtur verðlaunin, er þér velkomið að senda inn ágrip fyrir erindi.

Fylgstu með ráðstefnunni í beinu streymi

Þú getur fylgst með ráðstefnunni í beinu streymi á Zoom þann 9. apríl 2027, kl. 9:00–17:00.

FYLGJAST MEÐ Á ZOOM

Hafa samband

Ef þú hefur spurningar um ráðstefnuna geturðu haft samband við formann ráðstefnunefnd:

Fyrri sjálfbærniráðstefnur

Kynntu þér fyrri sjálfbærniráðstefnur Háskólans á Akureyri og skoðaðu dagskrár og upptökur frá ráðstefnunum.

Upplýsingar og upptökur frá fyrri ráðstefnum