16. apríl 2026 kl. 14:00-18:00
Opið málþing þar sem sjónum verður beint að leit og björgun á norðurslóðum
Takið daginn frá!
Varðberg, Norðurslóðanetið, Landhelgisgæsla Íslands, dómsmálaráðuneytið og Háskólinn á Akureyri standa fyrir opinu málþingi þar sem sjónum verður beint að leit og björgun á norðurslóðum.
Málþingið fer fram í stofu M101 í Háskólanum á Akureyri og verður einnig hægt að fylgjast með í gegnum streymi á vef Varðbergs og í fjölmiðlum.
Leit og björgun á norðurslóðum er í hraðri þróun vegna aukinnar umferðar, breytts öryggisumhverfis og nýrrar tækni. Á þessu málþingi munu sérfræðingar ræða getu, samhæfingu og ábyrgð – og hvernig Ísland og samstarfsríki geta tryggt öryggi á einu af mest krefjandi svæðum heims.
Dagskrá
Erindi halda meðal annars:
- Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra
- Auðunn Friðrik Kristinsson, forstöðumaður aðgerðarsviðs Landhelgisgæslu Íslands
- Antonio Rolla, verkefnastjóri hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, vinnur að gervihnattaleiðsögn, neyðarsamskiptum úr geimnum og tækniþróun í leit og björgun
- Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu
- Guðbrandur Örn Arnarsson, aðgerðasviði Slysavarnafélagsins Landsbjargar
- Embla Eir Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Norðurslóðanets Íslands
- Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri
Nánari og uppfærð dagskrá verður birt á næstu dögum.
Skráning
Skráning á fundinn er nauðsynleg og er sætafjöldi takmarkaður.
Smelltu hér til að skrá þig
Við hlökkum til að sjá þig!