<span class="month">27</span>okt. <span class="time">kl. 11:00-12:00</span>
Félagsvísindatorg
Öll velkomin á Félagsvísindatorg!
Barneignir í breyttum heimi: Óvissa, ábyrgð og framtíðarsýn ungs fólks
Fæðingartíðni á Íslandi hefur farið lækkandi og sífellt fleiri fresta barneignum eða ákveða að eignast ekki börn. En hvað liggur að baki þessum breytingum?
Á næsta Félagsvísindatorgi fjallar Sunna Símonardóttir, lektor við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri, um hvernig ungt fólk endurmetur barneignir í ljósi fjárhagslegs og félagslegs öryggis, persónulegs frelsis og þeirra væntinga og ábyrgðar sem fylgja foreldrahlutverkinu.
Einnig verður fjallað um hvernig loftslagskvíði, óvissa um framtíðina og samfélagslegar væntingar hafa áhrif á ákvarðanir ungs fólks um barneignir. Erindið byggir á rannsóknum Sunnu og varpar ljósi á breytt viðhorf til fjölskyldulífs og foreldrahlutverks í nútímasamfélagi.
- Félagsvísindatorg fer fram í stofu M101
- Streymt verður frá torginu á Zoom hér
Sunna Símonardóttir
Sunna Símonardóttir er lektor við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri. Hún lauk doktorsprófi í félagsfræði frá Háskóla Íslands árið 2017 og hefur sérhæft sig í rannsóknum á foreldrahlutverkinu, kyngervi og fæðingartíðni.
Verið hjartanlega velkomin
Félagsvísindatorg er opið öllum áhugasömum. Við hvetjum fólk til að kíkja við, fræðast og taka þátt í áhugaverðri umræðu. Það er alltaf ánægjulegt að fá gesti til okkar í Háskólann á Akureyri!