Námstefna í Byrjendalæsi

11. september 2026 kl. 13:00-16:00
Takið daginn frá!

Velkomin á námstefnu í byrjendalæsi!

Föstudaginn 11. september verður haldin Námstefna í Byrjendalæsi í Háskólanum á Akureyri. Á námstefnunni koma saman kennarar sem kenna börnum á yngsta stigi grunnskóla með kennsluaðferðinni Byrjendalæsi og áhugafólk um læsi á yngsta stigi grunnskólans.

Í Byrjendalæsi er lögð áhersla á að börn kynnist áhugaverðum bókmenntum og fræðitextum. Barnabókmenntir og aðrir gæðatextar eru nýttir í lestrarkennslunni til að kenna tengsl stafs og hljóðs, efla lesskilning og kveikja áhuga barna á lestri og bókmenntum.

Fyrirlesarar námstefnunnar eru:

  • Dr. Dominic Wyse, prófessor við The University College í London
  • Pernille Ripp, kennari, rithöfundur og fyrirlesari
  • Auk þeirra munu kennarar úr leikskólanum Grænuvöllum og kennarar úr Borgarhólsskóla á Húsavík kynna þróunarverkefnið Lítil skref til læsis sem fékk Íslensku menntaverðlaunin 2025

Í tengslum við Námstefnu um Byrjendalæsi er ráðstefnan Læsi til náms og yndis laugardaginn 12. september, sjá vef Læsi til náms og yndis.

Námstefnan er tileinkuð Rósu Eggertsdóttur

Námstefnan í ár er tileinkuð minningu Rósu Eggertsdóttur menntafrömuði og upphafskonu Byrjendalæsis sem lést í október 2024. Veittar verða viðurkenningar og úthlutað í fyrsta sinn úr minningarsjóði Rósu til framúrskarandi læsiskennara.

Minningarsjóður Rósu Eggertsdóttur

Minningarsjóður Rósu Eggertsdóttur, frumkvöðuls og baráttukonu fyrir betri menntun og læsi, hefur það að markmiði að styrkja konur, stúlkur og kvár til listsköpunar og mennta. 

Þau sem hafa hug á að styrkja sjóðinn um 5.000 kr. og eignast um leið bókina Hið ljúfa læsi er velkomið að leggja inn á reikning sjóðsins, sem er í vörslu Zontaklúbbsins Þórunnar Hyrnu. 

Bankareikningur sjóðsins er:
0565-14-003491
Kt. 701190-2039

Nánari upplýsingar veitir Jenný Gunnbjörnsdóttir, jennyg@unak.is 

Viltu fylgjast með eða skrá þig strax?

Skráðu þig á póstlista og fáðu upplýsingar þegar nær dregur, eða skráðu þig til leiks strax í dag:

Drög að dagskrá

Húsið opnar kl. 12.30 og geta gestir fengið sér kaffisopa áður en dagskrá hefst.

13.00 - 13.20 | Í minningu Rósu Eggertsdóttur fræðakonu og frumkvöðuls

- Jenný Gunnbjörnsdóttir

Námstefnan í ár er tileinkuð Rósu Eggertsdóttur, menntafrömuðar og upphafskonu Byrjendalæsis. Í þessum dagskrárlið verður framlag hennar til fræða og skólastarfs heiðrað og sjónum beint að þeirri mikilvægu arfleifð sem hún hefur skilið eftir sig. Rósa var ötull frumkvöðull og áhrifamikill fræðimaður sem hafði djúpstæð áhrif á þróun læsiskennslu og menntunar.

13.20 - 13.40 | Framúrskarandi kennari og leiðtogi

Viðurkenningar úr Rósusjóði, minningarsjóði Rósu Eggertsdóttur.
Ingibjörg Auðunsdóttir frá Zontaklúbbnum Þórunni Hyrnu veitir viðurkenningar til kennara og leiðtoga fyrir framúrskarandi störf í þágu læsismenntunar.

13.40 - 14.20 | Börn og lestrarerfiðleikar: Vandinn við að alhæfa um of

- Dr. Dominic Wyse

Að styðja börn með lestrarerfiðleika er eitt mikilvægasta verkefni í skólastarfi þar sem lestur og ritun er lykilfærni sem hefur afgerandi áhrif til framtíðar. Í erindi sínu fjallar Dr. Wyse um hvernig rannsóknir á árangursríkri kennslu fyrir börn með lestrarerfiðleika hafa stundum verið alhæfðar yfir á kennslu allra nemenda. Með því að skoða kennslu bæði sem fræðilegt viðfangsefni og framkvæmd á vettvangi er ljósi varpað á þær stefnur og kennsluhætti sem byggja á traustum rannsóknum og eru líklegastar til að styðja börn til árangurs í lestri og ritun (Wyse o.fl., 2025).

14.20 - 14.40 | Hressing

Gert er hlé á dagskrá þar sem þátttakendur eru hvattir til að standa upp, rétta úr sér og njóta léttrar hressingar. Þetta er einnig kjörið tækifæri til að spjalla saman, skiptast á hugmyndum og ræða læsi. 

14.40 - 15.10 | Lítil skref á leið til læsis

- Kennarar úr Borgarhólsskóla og Grænuvöllum Húsavík

Í erindinu verður sagt frá þróunarverkefninu Lítil skref á leið til læsis sem er samstarfsverkefni leik- og grunnskóla á Húsavík og MSHA.
Verkefnið snýst um að byggja brú milli skólastiga og styðja við læsisnám barna frá leikskóla yfir í grunnskóla. Þema verkefnisins er læsi og er það rauði þráðurinn í öllu þróunarstarfinu. Í verkefninu er einnig lögð áhersla á að efla tengsl heimila og skóla og styðja fjölskyldur í að taka virkan þátt í læsisnámi barna.

15.10 - 15.50 | Að varðveita lestrargleðina: Að efla sjálfstæða lesendur í upphafi lestrarnáms

- Pernille Ripp

Fyrstu árin í læsisnámi hafa mótandi áhrif á það hvernig börn upplifa sig sem lesendur. Í þessu hagýta erindi kynnir Pernille Ripp skipulag og kennsluaðferðir sem hjálpa til við að viðhalda lestrargleði nemenda á sama tíma og unnið er markvisst að færniþróun hjá börnum á aldrinum sex til tíu ára. Þátttakendur fá tækifæri til að skoða hvernig hægt er að styðja við sjálfstæðan lestur, eiga uppbyggileg samtöl við unga lesendur og samræma kröfur um skipulagða læsiskennslu við valfrelsi og virkni nemenda. Markmiðið er að þátttakendur fari heim með hagnýtar hugmyndir sem hægt er að nýta strax í kennslunni.

15.50 - 16.00 | Samantekt og lok

Förum yfir helstu atriði ráðstefnunnar og drögum saman þau viðfangsefni og hugmyndir sem hafa verið í brennidepli.

Aðalfyrirlesarar

Pernille Ripp

Pernille Schmidt Ripp er kennari, rithöfundur og fyrirlesari sem starfar sem grunnskólakennari í Danmörku og vinnur jafnframt með kennurum víða um heim. Í starfi sínu leggur hún áherslu á að endurskoða hugmyndir okkar um læsi, sjálfræði nemenda og hvers konar námsumhverfi börn eiga skilið í skólum.

Dominic Wyce

Dominic Wyse er prófessor í leik- og grunnskólafræðum við University College London, Institute of Education, og stofnandi Helen Hamlyn Centre for Pedagogy (0–11 Years), sem vinnur að rannsóknum á menntun ungra barna. Hann er einnig formaður menntunarnefndar Research Excellence Framework (REF) 2029 í Bretlandi.
Rannsóknir hans beinast einkum að kennslu í lestri og ritun í grunnskóla. Hann þróaði ásamt samstarfsfólki kenninguna Double Helix of Reading and Writing, sem hefur haft áhrif á rannsóknir og kennsluhætti á alþjóðavettvangi.
Dominic hefur í meira en 25 ár lagt mikilvægt framlag til rannsókna á kennslufræði, námskrám og menntun og hefur jafnframt skrifað áhrifamiklar bækur fyrir kennara og kennaranema.

Að lokinni námsstefnu eru gestir hvattir til að nýta tækifærið og kynna sér bæjarlífið á Akureyri.

Nánari upplýsingar um menningar- og skemmtanalíf bæjarins koma hér inn síðar.

Facebook viðburður