14. nóvember 2025 kl. 14:00-16:00
Málþing í samstarfi AkureyrarAkademíunnar, Háskólans á Akureyri og ReykjavíkurAkademíunnar
Tilefni málþingsins eru átök og atburðir við meðferð frumvarpa á síðastliðnu vorþingi, en sjónarhornið verður þó almennara og víðfeðmara, – eða framkvæmdin við lagagerðina sjálfa, sem bæði byggir á faglegum forsendum og stjórnmálabaráttu. Áhersla verður lögð á málsmeðferð frumvarpa, gæði lagasetningar og skipulag starfa.
Fundarstjóri er Thomas Barry, forseti Hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri.
Boðið verður upp á streymi frá málþinginu en ekki verður hægt að senda inn fyrirspurnir til framsögufólks í pallborðinu.
Dagskrá
- Kl. 14:00 Setning. Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis
- Kl. 14:10 Alþingi og lagagerð. Dr. Davíð Þór Björgvinsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, og deildarforseti við Lagadeild
- Kl. 14:35 Fræðilegt og almennt yfirlit um störf Alþingis. Dr. Haukur Arnþórsson, sjálfstætt starfandi fræðimaður við ReykjavíkurAkademíuna
- Kl. 15:05 Starfshættir Alþingis frá sjónarhóli nýs þingmanns. Halla Hrund Logadóttir, alþingismaður
- Kl. 15:20 Fyrirspurnir og umræður: Framsögufólk situr fyrir svörum
- Kl. 16:00 Málþingslok
Öll velkomin!