<span class="month"> 1</span>nóv. <span class="time">kl. 17:00</span>
Fjölbreyttir örfyrirlestrar um tungumál, menningu og rannsóknir
Stefnumót í Þingeyjarsveit
Starfsfólk Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum heimsækir Þingeyjarsveit og býður til stefnumóts með fræðafólki frá Háskólanum á Akureyri, Náttúruhugvísindasetri og Jack Armitage frá Breiðanesi.
Á dagskrá eru fjölbreyttir örfyrirlestrar þar sem meðal annars verður fjallað um hljóð- og hulduheima Þingeyjarsýslu, íslenskt táknmál, orðabækur og viðhorf Norðlendinga til eigin framburðar. Að erindum loknum gefst gestum tækifæri til að taka þátt í umræðum.
Viðburðurinn fer fram sunnudaginn 1. nóvember kl. 17:00 í Bíósalnum í Framhaldsskólanum á Laugum.
Dagskrá
Hljóð- og hulduheimar Þingeyjarsýslu
Trausti Dagsson og Rósa Þorsteinsdóttir
Kynning á Talís-verkefninu
Hermína Gunnþórsdóttir og Kristín Margrét Jóhannsdóttir
Rista-vél: Núritunartungumál á íslensku
Jack Armitage
Orðabækur og gögn
Kristín Ingibjörg Hlynsdóttir
„Maður er náttúrulega svo stoltur af því að vera Norðlendingur“ – Viðhorf Norðlendinga til eigin framburðar
Finnur Friðriksson og Kristín Margrét Jóhannsdóttir, Háskólanum á Akureyri
Öll velkomin!
Gestir eru hjartanlega velkomnir á stefnumótið til að hlýða á áhugaverð erindi og taka þátt í umræðum.