Unpacking Masculinities in Times of Turmoil

<span>14.-16.</span> jún. 2027
7. alþjóðlega ráðstefnan um rannsóknir á körlum og karlmennsku

Unpacking Masculinities in Times of Turmoil

Háskólinn á Akureyri býður fræðafólk, stefnumótendur, fagfólk, kennara, aðgerðasinna og listafólk velkomið á alþjóðlegu ráðstefnuna Unpacking Masculinities in Times of Turmoil, sem fram fer dagana 14.–16. júní 2027.

Á ráðstefnunni verður sjónum beint að því hvernig pólitískar, efnahagslegar, umhverfislegar, menningarlegar og tæknilegar breytingar hafa áhrif á karlmennsku, kynjatengsl og samfélagið í heild.

Ráðstefnan er haldin af Norrænu rannsóknarsamtökunum um karla og karlmennsku (Nordic Association for Research on Men and Masculinities) í samstarfi við Hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri og Jafnréttisstofu.

Ráðstefnan fer fram á ensku.

Nánari upplýsingar um ráðstefnuna, innsendingu ágripa, skráningu og dagskrá má finna á ensku síðu ráðstefnunnar.

Facebook viðburður