26. september 2026 kl. 12:00-17:00
Spjallaðu við vísindafólkið okkar og kynntu þér rannsóknir við HA — sjón er sögu ríkari!
Hittu okkur á Vísindavöku!
Vísindavaka 2026 verður haldin laugardaginn 26. september í Laugardalshöll. Fulltrúar Háskólans á Akureyri verða að sjálfsögðu á staðnum með fjölbreyttar rannsóknir, tilraunir og verkefni fyrir forvitna gesti á öllum aldri.
Komdu við hjá okkur - prófaðu, rannsakaðu, spurðu og uppgötvaðu!
Hjá Háskólanum á Akureyri getur þú meðal annars:
- Kannað hversu hreinar hendur þínar eru og komist að því hvað leynist þar sem augað sér ekki
- Leikið þér með vísindi, tækni og sköpun og prófað efnivið úr STEM-vísindasmiðju fyrir leikskóla
- Prófað að fara í viðtal í beinni, ert þú kannski næsta fjölmiðlastjarna Íslands?
- Komist að því hvað hefur áhrif á loftgæðin okkar
- Gert tilraunir með útfjólublátt ljós, framkallað form og séð áhrif ljóssins með eigin augum
- Kynnst stóma og stómapokum og séð hvernig sérstakur bangsi hjálpar til við kennslu hjúkrunarfræðinema
Vinir okkar á SAk verða með!
HA og SAk vinna náið saman að kennslu, rannsóknum og fjölbreyttum verkefnum. Á Vísindavöku verður því líka hægt að hitta fólk frá SAk og prófa ýmislegt spennandi.
Þar getur þú meðal annars:
- Kynnst hjartastuðtækjum og verkefni um skráningu þeirra á Íslandi
- Gefið Nonna vökva í „æð“, en Nonni er barnadúkka úr hermisetri SAk
- Prófað þekkinguna á mannslíkamanum og fundið réttu líkamspartana og líffærin á beinagrind
- Gerst heilbrigðisstarfsmaður í smástund og hjúkrað böngsum og dúkkum sem þurfa á góðri aðhlynningu að halda
Það verður nóg að skoða, prófa og uppgötva - við hlökkum til að hitta ykkur á vísindavöku!