Laus störf: Doktorsnemastöður við Háskólann á Akureyri

Háskólinn á Akureyri auglýsir til umsóknar allt að þrjár fullfjármagnaðar doktorsnemastöður til fjögurra ára á fjölbreyttum fræðasviðum. Leitað er að metnaðarfullum umsækjendum sem vilja leggja sitt af mörkum til öflugra rannsókna í alþjóðlega tengdu og framsæknu fræðasamfélagi.

Háskólinn er öflugur og vaxandi rannsóknaháskóli sem hefur á undanförnum árum byggt upp sterka stöðu á alþjóðlegum vettvangi rannsókna. Þeir umsækjendur sem hljóta stöðurnar fá aðstöðu til rannsókna innan viðeigandi fræðasviðs og njóta leiðsagnar reyndra fræðimanna á sínu sérsviði.

Háskólinn á Akureyri býður upp á öflugt rannsóknarumhverfi með sterk tengsl við atvinnulíf og alþjóðlega samstarfsaðila. Háskólinn leggur áherslu á þverfaglegt samstarf, nýsköpun og rannsóknir sem takast á við mikilvægar samfélagslegar áskoranir.

Doktorsnemastöðurnar eru í boði á eftirfarandi fræðasviðum:

  • Félagsvísindi (félagsfræði, lögfræði og sálfræði)
  • Heilbrigðisvísindi (hjúkrunarfræði)
  • Menntavísindi (menntunarfræði)
  • Viðskipta- og raunvísindi (auðlindafræði, líftækni, sjávarútvegs- og fiskeldisfræði og viðskiptafræði)

Gert er ráð fyrir að umsækjendur móti eigin rannsóknarverkefni í samstarfi við væntanlegan leiðbeinanda. Upplýsingar um rannsóknarsvið háskólans, sérfræðiþekkingu fræðafólks og tengiliðaupplýsingar má finna hér.

Helstu verkefni og ábyrgð

Um er að ræða fullfjármagnaðar doktorsnemastöður og greiðast laun samkvæmt gildandi kjarasamningum.

Doktorsnemar verða ráðnir til Háskólans á Akureyri til fjögurra ára og er gert ráð fyrir að þeir hafi starfsstöð á Akureyri á námstímanum. Starfshlutfall skiptist í 75% rannsóknir og 25% kennslu. Nánara fyrirkomulag kennslu verður ákveðið í samráði við viðkomandi fræðasvið við ráðningu.

Hæfniskröfur

Umsækjendur skulu:

  • Hafa lokið meistaraprófi á viðeigandi fræðasviði með fyrstu einkunn.
  • Sýna fram á sterka rannsóknarfærni og möguleika til árangurs í rannsóknum.
  • Leggja fram skýra hugmynd að rannsóknarverkefni sem fellur að einu af framangreindum fræðasviðum.
  • Geta unnið bæði sjálfstætt og í samstarfi við aðra.

Umsóknarferlið

Umsóknarfrestur er til og með 22. september 2026

Gert er ráð fyrir að umsóknir uppfylli þær gæðakröfur sem gerðar eru til doktorsnáms á því fræðasviði sem umsækjandi hyggst stunda rannsóknir á. Umsækjendur skulu jafnframt uppfylla skilyrði fyrir innritun í doktorsnám við Háskólann á Akureyri og er þeim ráðlagt að kynna sér þau vandlega hér áður en umsókn er lögð fram.

Umsóknargerð er á ábyrgð doktorsnemans, sem skal leiða undirbúning umsóknargagna og mótun rannsóknaráætlunar. Aðalleiðbeinandi skal vinna með umsækjanda að undirbúningi umsóknarinnar og veita ráðgjöf og endurgjöf við þróun rannsóknaráætlunarinnar. Umsækjendum er eindregið ráðlagt að hafa samband við væntanlega leiðbeinendur með góðum fyrirvara til að vinna sameiginlega að undirbúningi umsóknarinnar. Að sama skapi eru leiðbeinendur hvattir til að styðja og samþykkja einungis þær umsóknir sem þeir hafa farið vandlega yfir. Aðalleiðbeinandi getur einungis stutt eina umsókn á hverju námsári.

Við mat á umsóknum eru matsaðilar beðnir um að leggja eftirfarandi atriði til grundvallar. Mikilvægt er því að umsækjendur yfirfari umsóknir sínar með hliðsjón af þessum þáttum áður en þær eru lagðar fram.

Frumleiki og áhrif verkefnisins


Metið er hversu skýrt er skilgreint það frumframlag til þekkingar sem doktorsverkefnið mun veita, hvernig það tengist núverandi stöðu þekkingar á viðkomandi fræðasviði og hversu viðeigandi fyrirhuguð aðferðafræðileg nálgun er. Jafnframt er litið til þess hvort umfang rannsóknarinnar sé nægilegt til að skila að lágmarki þremur vísindagreinum og hvort verkefnið hafi möguleika á að hafa jákvæð samfélagsleg áhrif.

Vísindaleg gæði og framkvæmanleiki


Metið er hvort umsækjandi sýni fram á traustan skilning á stöðu þekkingar á fyrirhuguðu rannsóknarsviði, hvort rannsóknarspurningar eða tilgátur séu vel mótaðar og hvort valdar rannsóknaraðferðir séu líklegar til að svara þeim með fullnægjandi hætti. Einnig er tekið mið af mikilvægi verkefnisins, tímasetningu þess, raunhæfni verkáætlunar og þeirri faglegu eða akademísku reynslu sem nýtist við framkvæmd rannsóknarinnar.

Doktorsnemi, leiðbeinendur, aðrir þátttakendur og stjórnun verkefnisins


Metið er hvort umsækjandi búi yfir þeirri þekkingu og færni sem nauðsynleg er til að ljúka verkefninu, auk reynslu, sérþekkingar og fræðilegs ferils aðalleiðbeinanda. Jafnframt er litið til reynslu annarra nefndarmanna í doktorsnefnd og mats á mögulegum áhættuþáttum sem kunna að hafa áhrif á framgang verkefnisins.

Ráðgjöf og leiðbeiningar um hæfisskilyrði, skipan doktorsnefnda og vísindaleg gæði rannsóknaráætlana má fá með því að hefja samstarf við leiðbeinendur á frumstigi undirbúnings umsóknar.

Umsóknarferlið fer fram í tveimur áföngum:

Fyrri áfangi – frumumsókn

Áður en umsókn er lögð fram skal umsækjandi hafa haft samband við væntanlegan leiðbeinanda. 

Umsækjendur skila stuttri umsókn þar sem gerð er grein fyrir námsbakgrunni þeirra og rannsóknaráhuga.

Seinni áfangi – full umsókn

Öllum umsóknum verður svarað og þeim umsækjendum sem standast fyrri áfanga verður boðið að skila fullri umsókn, þar á meðal ítarlegri rannsóknaráætlun og fylgigögnum.

Frestur til að skila fullri umsókn verður tilkynntur síðar til viðeigandi aðila.

Gert er ráð fyrir að þeir umsækjendur sem hljóta stöðurnar hefji doktorsnám í febrúar 2027.

Nánari upplýsingar