Laust starf: Aðjúnkt í lögfræði með áherslu á heimskautarétt

Háskólinn á Akureyri auglýsir lausa 100% stöðu aðjúnkts I í lögfræði með áherslu á heimskautarétt við Lagadeild, Hug- og félagsvísindasviðs. Ráðningin er tímabundin til eins árs með möguleika á framlengingu um eitt ár. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst 2026, eða samkvæmt samkomulagi. Næsti yfirmaður er forseti Lagadeildar. Starfsstöðin er á Akureyri.

Helstu verkefni og ábyrgð

Kennsla, rannsóknir og stjórnsýslustörf í heimskautarétti. Meðal námsgreina í heimskautarétti við Lagadeild HA er þjóðaréttur, auðlindaréttur, frumbyggjaréttur og mannréttindalögfræði. Einnig kennsla í grunn- og framhaldsnámi í lögfræði við Lagadeild HA, m.a. á sviði mannréttinda og samanburðarlögfræði. Nauðsynlegt er að viðkomandi geti kennt á ensku og hafi kunnáttu í íslensku.

Umsækjendur þurfa að geta tekið virkan þátt í framkvæmd og þróun sveigjanlegs náms og almennri uppbyggingu náms við deildina. Sérstaða laganáms við Háskólann á Akureyri felst í framsýnu, sveigjanlegu námi þar sem ekki er gerður greinarmunur á staðnámi og fjarnámi.

Menntunarkröfur:

Umsækjendur þurfa að lágmarki að hafa embættis- eða meistarapróf í lögfræði.

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af háskólakennslu er skilyrði og æskilegt að viðkomandi hafi reynslu af kennslu í sveigjanlegu háskólanámi.
  • Reynsla af fræðistörfum, einkum á sviðum sem tengjast kennslu viðkomandi.
  • Þekking á kennslukerfi háskólanna, Uglu og Canvas.
  • Gott vald á ensku og færni í að tjá sig í ræðu og riti er skilyrði.
  • Lágmarksþekking í íslensku er skilyrði.
  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
  • Færni og lipurð í mannlegum samskiptum ásamt góðri færni í að miðla eigin þekkingu.
  • Frumkvæði, sveigjanleiki og skipulagshæfni.
  • Geta til að vinna undir álagi.

Umsókn skal fylgja:

  • Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil, fræðistörf og kennslureynslu.
  • Staðfest afrit af prófskírteinum á íslensku eða ensku.
  • Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
  • Tilnefna skal a.m.k. tvo umsagnaraðila og er æskilegt að einn þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi eða fyrra starfi umsækjanda sem háskólakennari.

Við mat á umsóknum er tekið mið af hversu vel viðkomandi uppfyllir þarfir Lagadeildar Háskólans á Akureyri.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.

Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið hefur verið tekin. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur öll kyn til að sækja um laus störf.

Starfshlutfall er 100%

UMSÓKNARFRESTUR ER TIL OG MEÐ 25.06.2026

Nánari upplýsingar veita 

Ingibjörg Ingvadóttir, forseti Lagadeildar - ingibjorging@unak.is - 8919009
Thomas Barry, forseti Hug- og félagsvísindasviðs - tom@unak.is - 4608028

Sækja um starf