Laust starf: Verkefnastjóri klínísks námsmats og alþjóðamála í Hjúkrunarfræðideild

Háskólinn á Akureyri auglýsir laust til umsóknar 50% starf verkefnastjóra klínísks námsmats og alþjóðamála í hjúkrunarfræðideild. Starfið er tímabundið til tveggja ára. Starfið heyrir undir forseta hjúkrunarfræðideildar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ber ábyrgð á PebblePad (PP), rafrænu frammistöðumatskerfi nemenda í klínísku námi fyrir hönd hjúkrunarfræðideildar. Setur m.a. upp námskeið í PP fyrir hvert misseri og uppfærir skjöl í námskeiðum í samvinnu við umsjónarkennara námskeiða
  • Vinnur með sérfræðingum kennslumiðstöðvar að þróun rafræns frammistöðumats
  • Ber ábyrgð á handbók um klínískt nám í hjúkrunarfræði við HA, reglulegri endurskoðun hennar og útgáfu hennar
  • Vinnur að undirbúningi skiptináms nemenda frá samstarfsskólum HA erlendis sem óska eftir skiptinámi til Íslands
  • Vinnur með verkefnastjóra alþjóðamála að móttöku á erlendum nemendum
  • Er fulltrúi hjúkrunarfræðideildar í samstarfi HA í norrænum samstarfsnetum innan Nordplus (Nordkvist/Nordlink)

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf í hjúkrunarfræði er krafist
  • Æskilegt er að verkefnastjóri hafi eitthvað af eftirfarandi: námskeið í klínískri leiðsögn, framhaldsmenntun á sviði kennsluréttinda frá viðurkenndri stofnun, diplómapróf á sínu sérsviði eða meistarapróf
  • Starfið gerir kröfu til hæfni í mannlegum samskiptum, sjálfstæðra vinnubragða og skipulagshæfileika, víðtækrar reynslu í tölvunotkun og ábyrgðarkenndar
  • A.m.k. tveggja ára starfsreynsla og góð reynsla og þekking af klínískri hjúkrun á sjúkrastofnun er nauðsynleg svo og þekking og reynsla af kennslu
  • Góð færni í íslensku og ensku er nauðsynleg
  • Færni í einu skandinavísku tungumáli er æskileg

Umsókn skal fylgja:

  • Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil
  • Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum
  • Kynningarbréf þar sem fjallað er ítarlega um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins
  • Nöfn að minnsta kosti tveggja meðmælenda

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur öll kyn til að sækja um laus störf.

Við ráðningu í störf við Háskólann á Akureyri er tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans og tekið er tillit til þarfar einingarinnar við ráðningu.

Starfshlutfall er 50%

Umsóknarfrestur er til og með 14.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hafdís Skúladóttir, forseti hjúkrunarfræðideildar, hafdis@unak.is

Sækja um starf