CANDLES: Sjálfbær skólastjórnun á Norðurlöndum og norðurslóðum á tímum tækifæra og áskorana

Um verkefnið

Verkefnið nær til Danmerkur, Finnlands, Grænlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar og er unnið innan alþjóðlega rannsóknarnetsins NordLead. Sjónum er beint að því hvernig skólastjórnendur mæta áskorunum á borð við fólksfækkun, langar vegalengdir og örar samfélagsbreytingar, um leið og þeir laga skólastarf að menningu, aðstæðum og þörfum hvers staðar. Skólar í minni byggðum gegna oft víðara hlutverki en að sinna kennslu; þeir geta styrkt samheldni, menningu og framtíð samfélagsins.

Meginmarkmiðið er að rannsaka og efla skólastjórnun í þessum samfélögum. Rannsakendur og tólf skólastjórar, tveir frá hverju þátttökulandi, vinna saman með aðferðum starfendarannsókna. Skólastjórarnir greina áskoranir og tækifæri í eigin starfi, prófa umbætur og leggja mat á árangur í samstarfi við rannsakendur. Með þessu verður þekkingin til í skólastarfinu sjálfu og getur nýst beint í framkvæmd.

Verkefnið skiptist í þrjá tengda áfanga. Fyrst er mótaður sameiginlegur rammi fyrir rannsóknina og samstarfið styrkt. Næst fer fram starfendarannsókn í löndunum sex og þátttakendur deila reynslu og lærdómi yfir landamæri. Að lokum verða niðurstöður samþættar og þeim miðlað. Stefnt er að hagnýtum, rannsóknargrunduðum leiðbeiningum og tillögum fyrir sjálfbæra skólastjórnun sem nýtast bæði skólastjórnendum og þeim sem móta menntastefnu. Verkefnistímabilið er 2026–2028 og verkefnið er styrkt af Norrænu ráðherranefndinni í gegnum Nordic Arctic Programme.

Smelltu hér til að nálgast opinbera vefsíðu verkefnisins.

Rannsakendur

Samstarfsaðilar

Umfjöllun