Til hamingju með brautskráninguna, kæru kandídatar!

27 kandídatar ljúka námi við Háskólann á Akureyri í dag
Til hamingju með brautskráninguna, kæru kandídatar!

Í dag, 15. október, brautskrást 27 kandídatar frá Háskólanum á Akureyri. Af þeim hafa 15 stundað nám við Háskólasetur Vestfjarða, þar sem boðið er upp á nám í haf- og strandsvæðastjórnun og sjávarbyggðafræði.

Kandídötum verður fagnað við Vetrarbrautskráningarathöfn Háskólans á Akureyri laugardaginn 13. febrúar 2027, ásamt þeim sem brautskrást þann dag. Nánari upplýsingar um athöfnina og skráningu má finna hér.

„Tilefnið er sannarlega þess virði að fagna“

„Kæru kandídatar, í dag ljúkið þið mikilvægum kafla og ný tækifæri taka við. Að baki þessum áfanga liggja ótal vinnustundir, metnaður og þrautseigja sem þið megið sannarlega vera stolt af. Þið takið nú með ykkur þekkingu og reynslu sem mun nýtast ykkur á þeim leiðum sem þið veljið í framtíðinni. Við í Háskólanum á Akureyri erum afar stolt af ykkur og óskum ykkur innilega til hamingju með árangurinn. Þótt við komum ekki saman til hátíðlegrar athafnar í dag er tilefnið sannarlega þess virði að fagna. Ég vona að þið njótið dagsins, hvar sem þið eruð stödd, og hlakka til að fagna þessum tímamótum með ykkur í febrúar,“ segir Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri.

Brautskráning eftir námsleiðum

Í dag brautskrást 23 kandídatar úr framhaldsnámi og 4 kandídatar úr grunnnámi.

Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið

  • Fjórtán kandídatar með MRM-próf í haf- og strandsvæðastjórnun
  • Sex kandídatar með MS-próf í heilbrigðisvísindum
  • Einn kandídat með BS-próf í líftækni

Hug- og félagsvísindasvið

  • Einn kandídat með MA-próf í sjávarbyggðafræði
  • Einn kandídat með MEd-próf í menntunarfræðum
  • Einn kandídat með MS-próf í sálfræði
  • Tveir kandídatar með BS-próf í sálfræði
  • Einn kandídat með BA-próf í nútímafræði

Kandídatar fá prófskírteini sín send á lögheimili sitt á næstu dögum.

Háskólinn á Akureyri óskar kandídötum og aðstandendum þeirra hjartanlega til hamingju með áfangann! Við hlökkum til að fagna með ykkur 13. febrúar!