Rannsakaði áhrif þrávirkra mengunarefna á kísilþörunga og örverur sem þeim tengjast
Ashani Arulananthan varði doktorsritgerð sína í auðlindafræðum við Háskólann á Akureyri þann 7. október síðastliðinn. Ritgerðin ber heitið Áhrif fjölflúorsetinna alkýlefna á kísilþörunga og sambýlisörverur þeirra á norðurslóðum.
Í rannsókninni skoðaði Ashani áhrif PFAS-efna á tvær tegundir sjávarkísilþörunga. PFAS eru þrávirk mengunarefni sem hafa meðal annars greinst á heimskautasvæðum. Kísilþörungar gegna mikilvægu hlutverki í fæðuvefjum og því skiptir máli að skilja hvernig mengunin hefur áhrif á þá.
Áhrifin sjást ekki alltaf í vexti
Niðurstöðurnar sýna að PFAS-efni geta hamlað vexti þörunganna og raskað ljóstillífun þeirra. Við langvarandi útsetningu fyrir lágum styrk komu fram breytingar á sameindastigi sem vaxtarmælingar einar og sér náðu ekki að sýna. Rannsóknin leggur þannig grunn að frekari rannsóknum á áhrifum mengunar á lífríki sjávar.
Frá Srí Lanka til Akureyrar
Ashani er frá Srí Lanka og hóf doktorsnám við HA árið 2023. Áður rannsakaði hún meðal annars kóralrif og örplast.
Leiðbeinendur hennar voru Oddur Þór Vilhelmsson, Bettina Scholz og Margrét Auður Sigurbjörnsdóttir. Andmælendur voru Peter G. Kroth við Háskólann í Konstanz og Angela Wulff við Háskólann í Gautaborg.
Við óskum Ashani innilega til hamingju með árangurinn og doktorsgráðuna.
