Fyrrum stúdentar við HA snúa aftur heim til að veita kandídötum innblástur og heilræði á tímamótum
Háskólahátíð Háskólans á Akureyri fer fram 19. og 20. júní næstkomandi. Að þessu sinni var farin ný leið við val heiðursgesta en í fyrsta sinn verða þeir tveir í stað eins. Baldvin M. Hermannsson verður heiðursgestur kandídata á Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviði og Sylvía Briem Friðjónsdóttir verður heiðursgestur kandídata á Hug- og félagsvísindasviði.
Sú hefð hefur ríkt við Háskólann á Akureyri frá árinu 2014 að bjóða heiðursgesti að ávarpa kandídata á Háskólahátíð. Með því að bjóða tveimur heiðursgestum í ár gefst kostur á að endurspegla betur fjölbreyttan og fjölmennan hóp kandídata sem brautskráist frá háskólanum. Það á jafnframt vel við að báðir heiðursgestirnir eru fyrrum stúdentar Háskólans á Akureyri.
„Í ár ákváðum við að bjóða tveimur heiðursgestum í stað eins, enda brautskráum við fræðasviðin tvö hvort á sínum deginum. Frá því ég flutti til Akureyrar og tók við embætti rektors hefur mér þótt einstaklega ánægjulegt að hitta brautskráða HA-inga og heyra hversu vel þau tala um háskólann sinn og árin sem þau vörðu hér. Sú upplifun varð til þess að við ákváðum að leita til fyrrverandi stúdenta sem hafa náð langt á sínum vettvangi og geta deilt reynslu sinni með kandídötum. Ég er afar þakklát fyrir að Baldvin og Sylvía hafi tekið boðinu og er sannfærð um að þau muni veita kandídötum bæði innblástur og dýrmæt ráð fyrir næstu skref,“ segir Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor.
Baldvin M. Hermannsson
Baldvin M. Hermannsson er forstjóri Flugfélagsins Atlanta og hefur starfað hjá félaginu síðan hann brautskráðist frá Háskólanum á Akureyri árið 2001. Hann býr yfir áratuga reynslu úr alþjóðlegum flugrekstri og hefur gegnt fjölbreyttum stjórnunarstörfum í Evrópu, Asíu, Afríku og Miðausturlöndum.
„Það er mér heiður og ánægja að fá tækifæri til að koma heim til Akureyrar og ávarpa kandídata við þessi mikilvægu tímamót í lífi þeirra. Námið við Háskólann á Akureyri var lærdómsríkt og nýtist mér enn þann dag í dag. Ég hlakka því til að hitta kandídata sem eru að stíga fyrstu skref inn í næsta kafla ferils síns,“ segir Baldvin.
Sylvía Briem Friðjónsdóttir
Sylvía Briem Friðjónsdóttir er frumkvöðull, fyrirlesari og brautskráður stúdent við Háskólann á Akureyri. Hún er meðstofnandi Steindal ehf., sem hefur á skömmum tíma byggt upp öflugt vörumerki á íslenskum markaði og hlotið viðurkenningar fyrir framúrskarandi rekstur. Sylvía hefur víðtæka reynslu af sölu, markaðssetningu og þjálfun. Sylvía var um árabil þjálfari hjá Dale Carnegie, þar sem hún hlaut meðal annars alþjóðlega viðurkenningu sem besti þjálfari heims. Hún hefur einnig komið að fjölmiðlun, hlaðvarpsgerð og samfélagsverkefnum með áherslu á leiðtogahæfni, sjálfsstyrkingu og jákvæð samfélagsáhrif.
„Ég er meyr og full tilhlökkunar að koma til Akureyrar og fá að ávarpa kandídata í HA sem fyrrum stúdent háskólans. Ég hlakka til að eiga góðan og innblástursríkan dag með ykkur,“ segir Sylvía.
Háskólahátíð í beinni útsendingu
Venju samkvæmt verður hægt að fylgjast með Háskólahátíð í beinni útsendingu í gegnum Facebook síðu háskólans.
Gleðilega Háskólahátíð 2026!