Er gervigreind lykillinn að betri sjálfbærniskýrslum?

Kjartan Sigurðsson, dósent við Viðskiptadeild, er meðhöfundur nýrrar bókar um gervigreind og framtíð sjálfbærniskýrslugerðar
Er gervigreind lykillinn að betri sjálfbærniskýrslum?

Bókin AI and Sustainability Reporting: Advancing Sustainability, Accountability, and Corporate Governance er komin út hjá Routledge/Taylor & Francis. Meðhöfundar Kjartans að bókinni eru Patrycja Hąbek, og Małgorzata Radomska.

Í bókinni er fjallað um hvernig gervigreind getur mótað framtíð sjálfbærniskýrslugerðar, ESG-upplýsingagjafar, gagnsæis, ábyrgðar og stjórnarhátta fyrirtækja. Höfundar skoða hvernig ný tækni getur stutt við markvissari söfnun, greiningu og miðlun sjálfbærniupplýsinga og hvernig gervigreind getur nýst við að greina mynstur, meta áhættu og bæta gæði upplýsinga í sjálfbærniskýrslugjöf.

Jafnframt er fjallað um þær áskoranir sem fylgja aukinni notkun gervigreindar, meðal annars varðandi áreiðanleika gagna, siðferðileg álitamál, gagnsæi ákvarðana og ábyrgð fyrirtækja. Bókin tengir þannig saman fræðilega umræðu um sjálfbærni, stafræna umbreytingu og stjórnarhætti við raunverulegar áskoranir fyrirtækja og stofnana sem vinna að aukinni sjálfbærni og ábyrgri upplýsingagjöf.

Bókin er ætluð fræðafólki, stjórnendum, ráðgjöfum, framhaldsnemendum og öðrum sem vinna með sjálfbærni, gervigreind, samfélagslega ábyrgð fyrirtækja, upplýsingagjöf og stjórnarhætti. Hún leggur fram mikilvægt framlag til vaxandi umræðu um tengsl gervigreindar, sjálfbærrar þróunar og ábyrgra viðskiptahátta.