Fimm nýskipaðir deildarforsetar taka til starfa í dag

Deildarforsetar eru skipaðir til tveggja ára frá 1. júlí
Fimm nýskipaðir deildarforsetar taka til starfa í dag

Fræðasvið Háskólans á Akureyri eru tvö; Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið og Hug- og félagsvísindasvið. Innan fræðasviðanna eru svo starfræktar deildir sem eru faglegar grunneiningar háskólans sem starfa á vettvangi fræðasviðanna. Innan deilda háskólans fer fram kennsla, rannsóknir og stjórnun. Deildir eru sjálfstæðar um eigin málefni innan þeirra marka er sameiginlegar reglur háskólans setja og bera faglega ábyrgð á háskólakennslu og námi og veitingu prófgráðu við námslok.

Forseti fræðasviðs skipar deildarforseta til tveggja ára í senn samkvæmt tilnefningu deildarfundar. Nýir deildarforsetar hafa verið skipaðir fyrir Félagsvísindadeild, Iðjuþjálfunarfræðideild, Kennaradeild, Lagadeild og Sálfræðideild og munu leiða deildirnar næstu tvö árin.

  • Markus Meckl prófessor tekur við sem deildarforseti Félagsvísindadeildar af Sigurði Kristinssyni prófessor. Í kveðju sinni bendir Markus á fjölbreytileika deildarinnar og segir hann einn helsta styrkleika hennar enda „virða áhugaverðustu spurningarnar sjaldnast mörk fræðigreina“.
  • Í Iðjuþjálfunarfræðideild tekur Sara Stefánsdóttir lektor við sem deildarforseti af Sólrúnu Óladóttur lektor. Sara leggur áherslu á að iðjuþjálfun snúist um fólk, samfélög og þær fjölmörgu leiðir sem hægt er að nýta til að „efla þátttöku, heilsu og vellíðan“.
  • Í Kennaradeild tekur Sigríður Margrét Sigurðardóttir dósent við keflinu af Guðmundi Engilbertssyni lektor. Sigríður segir deildina gegna lykilhlutverki í menntun kennara og skólastjórnenda og að „rannsóknir, gagnrýnin hugsun og fagmennska“ séu leiðarljós í starfi deildarinnar.
  • Valgerður Guðmundsdóttir lektor verður deildarforseti Lagadeildar en Ingibjörg Ingvadóttir aðjúnkt hefur gengt embætti deildarforseta frá því í apríl þegar Davíð Þór Björgvinsson prófessor lét af störfum. Valgerður leggur áherslu á fjölbreytt og krefjandi nám sem undirbúi stúdenta fyrir framtíðarstarfsvettvang og nefnir sérstaklega „náið námsumhverfi“ þar sem áhersla er lögð á skoðanaskipti og rökfræði.
  • Mehmet Harma prófessor tekur við sem deildarforseti Sálfræðideildar af Richard Taehtinen dósent. Mehmet segir sálfræðina fást við nokkrar af áhugaverðustu og mikilvægustu spurningum vísindanna og leitast við að „skilja hvernig fólk hugsar, upplifir og hegðar sér“.

Við óskum nýjum deildarforsetum velfarnaðar í störfum sínum og þökkum um leið fráfarandi deildarforsetum fyrir þeirra mikilvæga framlag til deildanna!