Fjölmenn þátttaka frá HA á stærstu vísindaráðstefnu um norðurslóðir sem haldin hefur verið til þessa

Undirstrikar mikilvægt hlutverk Akureyrar sem miðstöð rannsókna, menntunar og alþjóðlegs samstarfs á norðurslóðum
Fjölmenn þátttaka frá HA á stærstu vísindaráðstefnu um norðurslóðir sem haldin hefur verið til þessa

Fjölmennur hópur frá Háskólanum á Akureyri og norðurslóðastofnunum á háskólasvæðinu hefur síðustu daga tekið þátt í UArctic Congress 2026, ráðstefnu Háskóla norðurslóða, sem haldin var í Færeyjum. Ásamt því tók hópurinn jafnframt þátt í Ocean Connectivity Conference á vegum formennskuríkis Norðurskautsráðsins sem fór fram samhliða UArctic Congress.

Stærsta vísindaráðstefna um norðurslóðir til þessa

Háskóli norðurslóða (e. UArctic) var stofnaður árið 2001 og hefur með tímanum orðið mikilvægasta samstarfsnet háskóla og rannsóknastofnana á norðurslóðum. Háskólinn á Akureyri og Stofnun Vilhjálms Stefánssonar eru meðal stofnaðila Háskóla norðurslóða og hafa tekið virkan þátt í starfinu frá upphafi.

Ráðstefnan var bæði stærsta vísindaráðstefna sem haldin hefur verið um málefni norðurslóða og jafnframt stærsta ráðstefna sem fram hefur farið í Færeyjum. Um 1.400 þátttakendur sóttu ráðstefnuna og yfir 200 málstofur voru á dagskrá þar sem fjallað var um fjölbreytt viðfangsefni sem tengjast samfélögum, umhverfi, rannsóknum og þróun á norðurslóðum. Þar af voru fulltrúar HA og norðurslóðastofnana með framlag í rúmlega 20 málstofum/veggspjaldakynningum. Þá voru alþjóðamál og áhugi stórveldanna rædd í þaula auk þess sem loftslagsbreytingar og málefni hafsins voru í brennidepli.

Breið þátttaka frá Akureyri


Fulltrúar Auðlindadeildar; Auður deildarforseti, Eva María, Oddur og Ashani

Fulltrúar HA komu frá báðum fræðasviðum háskólans og fjölbreyttum deildum: Auðlindadeild, Viðskiptadeild, Félagsvísindadeild, Hjúkrunarfræðideild og Lagadeild. Einnig tóku þátt fulltrúar frá Miðstöð doktorsnáms, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og Rannsóknamiðstöð ferðamála.

Á ráðstefnunni var einnig starfsfólk vinnuhópa Norðurskautsráðsins, CAFF og PAME, sem hafa aðsetur á háskólasvæðinu á Akureyri auk fulltrúa Norðurslóðanets og Háskólaseturs Vestfjarða.

Færeysk menning í brennidepli

Auk fræðilegrar dagskrár bauð ráðstefnan upp á fjölbreytta menningarviðburði sem gáfu gestum tækifæri til að kynnast færeysku samfélagi og menningu. Til þess að bjóða þátttakendur velkomna bauð færeyska flugfélagið Atlantic Airwaves til móttöku á færeyska þjóðarleikvanginum kvöldið fyrir ráðstefnuna. Á opnunarviðburðinum kom söngkonan Eivør fram og í miðbæ Þórshafnar var haldin sérstök götuhátíð fyrir ráðstefnugesti með færeyskum mat og tónlistarflutningi. Ráðstefnunni lauk svo með hefðbundnum færeyskum keðjudansi og lokamóttöku í viðburðamiðstöðinni við Tjarnir í Hoyvík.


Kjartan frá Viðskiptadeild, Tom forseti Hug- og félagsvísindasviðs og Helga sérfræðingur hjá SVS

Þátttaka fulltrúa frá Háskólanum á Akureyri og samstarfsstofnunum undirstrikar mikilvægt hlutverk Akureyrar sem miðstöð rannsókna, menntunar og alþjóðlegs samstarfs á norðurslóðum.