Forseti í heimsókn í tilefni af 20 ára afmæli Lagadeildar Háskólans á Akureyri

Málþing í tilefni dagsins - Mikael Karlsson heiðursgestur
Forseti í heimsókn í tilefni af   20 ára afmæli Lagadeildar Háskólans á Akureyri

Á morgun, miðvikudaginn 22. mars kl. 8:30-12:30, fer fram málþing í Hátíðarsal Háskólans á Akureyri í tilefni af 20 ára afmæli Lagadeildar.

Markmið málþingsins er að heiðra þau sem lögðu grunninn að velgengni deildarinnar ásamt því að dreifa þekkingu á þeim lagarannsóknum sem fræðimenn við Lagadeild HA eru að stunda. Bæði fyrrum og núverandi kennarar og stúdentar, ásamt öðrum sem hafa tengsl við Lagadeildina eða almennt við laganám á Íslandi, munu halda kynningar um ýmis lögfræðileg álitaefni á málþinginu.

Dagskrá

08:30 Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri - Setning málþings

08:40 Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands - Forsetinn og stjórnarskráin – sjö árum síðar

08:55 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

 

09:10 Berglind Ósk Guðmundsdóttir, alþingismaður - Frá laganámi til lagasetningar

09:25 Júlí Ósk Antonsdóttir, aðjúnkt við Lagadeild og landsréttarlögmaður - Réttindi brotaþola

09:40 Birna Ágústsdóttir, sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra - Stafræn vegferð hins opinbera - hvers ber að gæta?

09:55 Aðalheiður Ámundadóttir, lögfræðingur og blaðamaður - Blaðamennska í óvinveittu lagaumhverfi - um lög og venjur sem hamla daglegu starfi blaðamanna á ritstjórnum landsins

10:10 Rachael Lorna Johnstone, prófessor og deildarforseti Lagadeildar - Pallborðsumræður

10:30 Kaffihlé

10:45 Mikael Karlsson, heiðursgestur, prófessor í heimspeki og fyrrverandi forseti Félagsvísinda- og lagadeildar HA - Um tilgang lagamenntunar

11:05 Nökkvi Alexander Rounak Jónsson, stúdent í framhaldsnámi við Lagadeild HA - Persónulegt laganám í hjarta Akureyrar

11:20 Ingólfur Friðriksson, deildarstjóri Evrópumála á viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins - Áhöld um innleiðingu bókunar 35 við EES-samninginn - Frumvarp til laga um breytingar á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993

11:35 Rachael Lorna Johnstone, prófessor og deildarforseti Lagadeildar - Heimskautaréttur eftir innrás Rússa í Úkraínu

11:50 Sara Fusco, doktorsnemi við Háskólann í Lapplandi og fyrrverandi LLM stúdent við HA - Eignarréttur frumbyggja á landi sínu út frá sjónarhóli stjórnskipulegrar umhverfisverndar

12:05 Valgerður Guðmundsdóttir, lektor við Lagadeild - Pallborðsumræður

Áður kom fram að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra, tæki þátt í afmælisþinginu en hún hefur boðar forföll. 

ÖLL VEKOMIN!