Niðurstöður samstarfsverkefnis um inngildingu kynntar á lokaráðstefnu með þátttöku fulltrúa HA
Niðurstöður tveggja ára samstarfsverkefnis opinberu háskólanna á Íslandi um inngildingu voru kynntar á lokaráðstefnu í Norræna húsinu 5. nóvember. Fulltrúar Háskólans á Akureyri tóku þátt í dagskránni.
Lokaráðstefna verkefnisins Inngilding í íslensku háskólasamfélagi fór fram í Norræna húsinu 5. nóvember síðastliðinn og var jafnframt streymt á netinu. Á ráðstefnunni voru kynntar helstu niðurstöður verkefnisins og reynsla stúdenta. Þá var fjallað um fordóma, staðalmyndir, tilfinningu fyrir því að tilheyra, inngildandi kennslu og ábyrgð háskóla á að skapa samfélag þar sem öll geta tekið þátt.

Auðbjörg Björnsdóttir í pallborði
Tveir fulltrúar Háskólans á Akureyri komu að dagskrá ráðstefnunnar. Auðbjörg Björnsdóttir, forstöðumaður kennslu- og upplýsingatæknimiðstöðvar, tók þátt í pallborðsumræðunum „Frá skuldbindingu til ábyrgðar“. Lara Hoffmann, sérfræðingur hjá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA), sem starfaði að verkefninu, kynnti niðurstöður þess ásamt öðrum sérfræðingum verkefnisins.

Lara Hoffmann
Meðal aðalfyrirlesara var Dani de Torres, sérfræðingur Evrópuráðsins í millimenningarlegri stefnumótun og stofnandi Anti-Rumours Global. Hann kynnti Anti-Rumours-nálgunina og fjallaði um hvernig nýta megi hana til að efla opnara samtal, gagnrýna hugsun og inngildingu. Eliza Reid, rithöfundur, fyrirlesari og fyrrverandi forsetafrú Íslands, stýrði ráðstefnunni.
Ráðstefnan var vel sótt af starfsfólki, stjórnendum og kennurum háskóla, stúdentum og öðrum sem láta sig jafnrétti, fjölmenningu og inngildingu varða.
Þótt samstarfsverkefninu sé lokið heldur vinnan áfram. Næsti áfangi felst í að nýta niðurstöður, stefnu og verkfæri verkefnisins í áframhaldandi starfi háskólanna og stuðla þannig að inngildandi háskólasamfélagi.