Sara, sem er lektor við Iðjuþjálfunarfræðideild háskólans, hlaut verðlaun ÖBÍ réttindasamtaka fyrir framúrskarandi doktorsritgerð í fötlunarfræðum. Þetta er í fyrsta sinn sem ÖBÍ veitir verðlaun fyrir lokaverkefni til meistara- og doktorsgráðu með áherslu á fatlað fólk og/eða fötlunarfræði, eftir tilnefningar frá öllum háskólum landsins. Verðlaunin voru afhent á alþjóðadegi fatlaðs fólks 3. desember í Mannréttindahúsinu.
Doktorsritgerð Söru ber heitið „Glíma seinfærra foreldra við kerfislægar hindranir út frá réttindamiðaðri nálgun“ (e. Parents with Intellectual Disabilities Negotiating Systemic Challenges through a Rights Based Approach). Í umsögn dómnefndar kemur fram að rannsóknin varpi ljósi á stöðu seinfærra foreldra sem mæta kerfislægum hindrunum, meðal annars í aðgengi að viðeigandi stuðningi og í samskiptum við kerfi sem koma að málefnum fjölskyldna.
Notkun niðurstaðna verði nýtt í „kerfinu“
„Það er mikill heiður að fá svona verðlaun. Það er viðurkenning á gæðum rannsóknarinnar en fyrst og fremst vekja þau athygli á stöðu fatlaðra foreldra innan kerfisins og þá sérstaklega seinfærra foreldra en hún er ákaflega þung, bæði hvað varðar aðgengi að viðeigandi stuðningi í foreldrahlutverkinu og réttlátri meðferð innan kerfisins,“ segir Sara.
Hún leggur áherslu á að þekking sem rannsóknir hafi þegar byggt upp um hindranir og árangursríkan stuðning skili sér inn í kerfin „á öllum stigum, frá stjórnsýslu niður í praktík“. Sara segir einnig brýnt að rannsaka þurfi betur stöðu uppkominna barna seinfærra foreldra á Íslandi: „Mér finnst að sérstaklega þurfi að rannsaka stöðu þeirra barna sem hafa verið tekin úr umsjá foreldra sinna og hafa alist upp sem fósturbörn. Það er margt sem bendir til þess að huga þurfi mun betur að afleiðingum slíks aðskilnaðar og áhrifa á velferð þeirra sem alast upp í „kerfinu“.
Að lokum segir Sara að það verði spennandi að fylgjast með hvort og þá hvernig löggilding samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks muni hafa áhrif á fjölskyldulíf fatlaðs fólks.
Við óskum Söru innilega til hamingju með verðlaunin!