Fylgir nýrri tækni meira öryggi?

Háskólinn á Akureyri hlaut á dögunum styrk úr sjóðnum Arctic Research and Studies - Norðurslóðafræði
Fylgir nýrri tækni meira öryggi?

Styrkurinn mun fjármagna þróun alþjóðlegs verkefnis sem miðar að því að rannsaka öryggi á norðurslóðum og seiglu samfélaga. Það er gert með því að skoða áhrif á svæðið hvað varðar notkun og þróun á tækni með tvíþætt notagildi.

Tækni með tvíþætt notagildi nær yfir breitt svið nýrra tæknilausna sem hafa bæði borgara- og hernaðarleg not, allt frá gervigreind og fjarskiptakerfum til líftækni og gervihnatta- og geiminnviða. Verkefnið leitast við að svara þeirri spurningu að hve miklu leyti útbreiðsla slíkrar tækni eykur seiglu samfélaga á norðurslóðum.

Þróun og notkun þessarar tækni hefur verið til umræðu í fjölmörgum mikilvægum pólitískum og fræðilegum rökræðum undanfarin ár, þar sem sjónum hefur verið beint að vaxandi spennu í alþjóðamálum og auknu óöryggi á svæðinu. Á sama tíma er tæknin kynnt á þá leið að henni fylgi ný tækifæri hvað varðar efnahagsþróun, aukið öryggi í samfélaginu og hún geti hjálpað til við að takast á við áskoranir sem tengjast sjálfbærni og umhverfismálum.

Verkefnið mun skoða þessa togstreitu frá ólíkum nálgunum á öryggi og óöryggi og sameina hernaðar-, umhverfis-, félags- og efnahagsleg sjónarhorn.

Adam Fishwick, rannsóknarstjóri, mun stýra verkefninu í samstarfi við Tom Barry, deildarforseta Hug- og félagsvísindasviðs og Katharinu Glaab við University of Life Sciences í Noregi. Markmið styrksins er jafnframt að efla samstarf fræðafólks á Íslandi og í Noregi.