„Gleði, eftirvænting og árangur alltumlykjandi. Það er ekki annað hægt en að hrífast með“

María Jónsdóttir, forstöðumaður nemendaráðgjafar, er næsti viðmælandi í samstarfi Kaffið.is og HA þar sem við fáum að kynnast mannlífinu í skólanum
„Gleði, eftirvænting og árangur alltumlykjandi. Það er ekki annað hægt en að hrífast með“

Við hvað starfar þú hjá HA og hvað ertu búin að vera lengi í starfi?

Ég starfa sem forstöðumaður nemendaráðgjafar HA. Þar vinn ég meðal annars að því að styðja við stúdenta í námi, veita ráðgjöf um náms- og starfsval og þróa þjónustu sem stuðlar að vellíðan og árangri nemenda. Hjá nemendaráðgjöf er bæði náms- og starfsráðgjöf og sálfræðiþjónusta. Ég hef starfað í HA í sex ár.

Hvernig finnst þér háskólalífið á Akureyri?

Það er ekki hægt að segja annað en að háskólalífið á Akureyri sé skemmtilegt og lifandi. Frábær tækifæri til að takast á við nýjar áskoranir og uppgötva styrkleika sína eru til staðar og metnaður í fyrirrúmi. Gott námssamfélag finnst mér einkenna háskólalífið.

Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór?

Ætli mig hafi ekki langað mest til að vinna í sirkus. Línudans og loftfimleikar þar sem hægt er að svífa um sirkustjald heilluðu, frelsi, hugrekki og lífsgleði. Ég hefði pottþétt getað orðið góður húlladansari. Litla systa mín myndi örugglega segja að ég hafi alltaf ætlað að verða kennari. Hún lét vel að stjórn í hinum ýmsu skólaleikjum þegar við vorum krakkar.

Hvað finnst þér gera HA sérstakan?

Fólkið og krafturinn bæði hjá nemendum og starfsfólki gerir HA sérstakan. Sem náms- og starfsráðgjafi er ég svo heppin að hitta fjölbreyttan hóp nemenda með ólíka reynslu og drauma. Það er fátt skemmtilegra en að kynnast og vinna með fólki sem er að stefna í átt að markmiðum sínum.

Skemmtilegasta minning þín í HA?

Skemmtilegustu minningar mínar í HA tengjast annars vegar nýnemadögum og hins vegar háskólahátíð þegar nemendur brautskrást. Gleði, eftirvænting og árangur alltumlykjandi. Það er ekki annað hægt en að hrífast með.

Uppáhaldsstaður í HA?

Nuddstóllinn hjá nemendaráðgjöf. Smá pása og nudd geta verið frábær leið til að efla athygli og auka afköst. Þar er fólk líka oft að doka eftir vini eða á leiðinni að takast á við næsta verkefni dagsins.

Hvaða þrjú orð dettur þér í hug þegar þú hugsar um HA?

Stúdentar, hjartað í HA.

Tjaldurinn, fallegur og dásamlegt að fylgjast með en líka svo fyndinn.

Útsýnið, ekki hægt að biðja um það betra