Gleði og hreyfing mikilvæg til þess að halda jafnvægi í lífinu

Eldri borgarar fjölmenntu í Opið hús í HA
Gleði og hreyfing mikilvæg til þess að halda jafnvægi í lífinu

Hreyfing, öryggi og vellíðan fólks á efri árum var til umræðu á fjölmennum fundi í Háskólanum á Akureyri í vikunni. Þar kom fram að hreyfing væri undirstaða góðrar andlegrar og líkamlegrar heilsu og hvati að betri félagslegum samskiptum og virkni í daglegu lífi. Gleðina má heldur ekki vanmeta þegar fólk vill breyta hreyfa sig meira og huga að lífsstílnum. Fram kom einnig að um 80% þeirra sem þurfa að hreyfa sig meira sitja enn í sófanum og eru að hugsa málið. Á fundinum kom fram að mikilvægt væri að þeir sem eru virkir og duglegir að hreyfa sig hvetji þennan óvirka hóp og fái fólk til þess að prófa eitthvað af því fjölmarga sem er í boði á Akureyri.

Gestir á stað voru um 70 talsins, auk þeirra sem fylgdust með á streymi. Fyrirlesarar voru þrír að þessu sinni en yfirskriftin var Að halda jafnvægi í lífinu — Hreyfing, öryggi og vellíðan fyrir 60+.

Öll hreyfing betri en engin

Héðinn Svarfdal Björnsson talaði fyrir hönd Virkra efri ára-Akureyrarbær. Síðan talaði Anna Rebekka Hermannsdóttir íþróttakennari og loks Þorleifur Stefánsson sjúkraþjálfari, en öll þrjú eru mjög virk í því að stuðla að aukinni hreyfingu og lífsgæðum meðal eldri borgara á Akureyri.

Anna Rebekka segir frá að öll hreyfing sé góð. Til dæmis bara að rölta út að glugga og dást að útsýninu. 

Héðinn lagði meðal annars áherslu á að kannanir sýndu að það væru fimm þættir sem leiddu til aukinnar vellíðunar á efri árum. Þar væri hreyfing ofarlega á lista og æskilegt væri að hreyfa sig minnst 30 mínútur þrisvar sinnum í viku. Anna Rebekka var upptekin af því að öll hreyfing væri betri en enginn og væri hún lykill að gleði og því að njóta þess sem væri að gerast í daglega lífinu. Þorleifur talaði um aldurstengdar breytingar og hvernig hreyfing og jafnvægisæfingar gætu aukið öryggi fólks og dregið úr hrörnun. Þorleifur vinnur að því að þróa app með aðgengi að styrktaræfingum og var öllum gestum boðinn ókeypis aðgangur að þeim.

Héðinn og Þorleifur segja frá sínum verkefnum

Næsta opna hús verður 18. maí klukkan 14:00 í Háskólanum á Akureyri. Hann verður auglýstur nánar síðar á Facebook-síðu Góðvina og miðlum háskólans. Opið hús er nýjung í boði Góðvina háskólans, Heilbrigðisstofnunar Norðurlands eystra, Sjúkrahússins á Akureyri, Eldri borgara á Akureyri og Virk efri ár - Akureyrarbær.