HA fer norður á bóginn – í þetta sinn til Tromsø!

Verkefnastjóri Norðurslóðamiðstöðvar Íslands tók þátt í ráðstefnunni China–Nordic Arctic Cooperation Symposium og Arctic Frontiers í byrjun febrúar
Hildur Sólveig Elvarsdóttir, verkefnastjóri Norðurslóðamiðstöðvar Íslands
Hildur Sólveig Elvarsdóttir, verkefnastjóri Norðurslóðamiðstöðvar Íslands

Hildur Sólveig Elvarsdóttir, verkefnastjóri Norðurslóðamiðstöðvar Íslands við HA, tók þátt og flutti erindi sem bar heitið „Stronger Arctic Research in Iceland and Icelandic preparations for the International Polar Year“. Þar sagði hún frá stöðu Íslands í norðurslóðarannsóknum og undirbúningi fyrir næsta alþjóðlega heimskautaár sem er alþjóðlegt vísindaátak sem beinist að rannsóknum á heimskautasvæðum.

Sérstaka áherslu lagði hún á verkefnið „Norðurslóðarannsóknir á Íslandi“, sem er samstarfsverkefni HA, Háskóla Íslands, Norðurslóðanets Íslands og Rannís. Verkefnið er styrkt af samstarfssjóði háskóla á vegum Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins. Á meðan að verkefninu stendur verða meðal annars haldnar fjórar vinnustofur um mikilvæg málefni norðurslóða ásamt áskorunum og tækifærum í rannsóknum. Niðurstöður vinnustofanna gætu orðið mikilvægt framlag Íslands inn í áðurnefnt heimskautaár.Hér má nálgast nánari upplýsingar um verkefnið „Norðurslóðarannsóknir á Íslandi“. 


Frá vinstri: Rasmus G. Bertelsen, Nansen prófessor við HA 2022-2023, Hildur Sólveig og Egill Þór Níelsson, sérfræðingur á rannsókna- og nýsköpunarsviði hja RANNÍS

Samhliða CNARC ráðstefnunni sótti Hildur Sólveig einnig Arctic Frontiers, ásamt þremur stúdentum úr meistaranámi í Heimskautarétti. Arctic Frontiers er einn helsti alþjóðlegi vettvangur vísinda, stefnumótunar og viðskipta sem fjallar um áskoranir og tækifæri á norðurslóðum. Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, var meðal þátttakendum á ráðstefnunni og var með erindi í málstofunni Stories from the Coast.