Háskólinn á Akureyri opnar fyrir nám í áfengis- og vímuefnaráðgjöf

Brýn þörf fyrir formlega háskólamenntun á þessu sviði
Háskólinn á Akureyri opnar fyrir nám í áfengis- og vímuefnaráðgjöf

Háskólaráð Háskólans á Akureyri samþykkti á fundi sínum 26. september að setja á laggirnar nýtt þriggja ára bakkalárnám í Áfengis- og vímuefnaráðgjöf við Hjúkrunarfræðideild.

Náminu ætlað að styrkja sérhæfingu fagfólks

Námið er 180 ECTS-einingar og verður það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi en hingað til hefur Símenntun HA verið með umfangsmikil námskeið á þessu sviði. Með námsleiðinni er brugðist við brýnni þörf fyrir formlega háskólamenntun á þessu sviði og aukinni eftirspurn eftir sérhæfðu fagfólki innan heilbrigðis- og velferðarþjónustu.

Námið mun búa stúdenta undir störf við forvarnir, ráðgjöf, meðferð og endurhæfingu einstaklinga með fíknivanda og fjölskyldna þeirra. Rík áhersla verður lögð á klíníska þekkingu og færni, gagnreyndar aðferðir, fagmennsku, rannsóknarlæsi og þverfaglega teymisvinnu. Námið verður að mestu kennt í fjarnámi með reglulegum staðlotum við háskólann og klínísku námi á viðeigandi vettvangi.

Fyrirkomulag námsins

Megináherslur í náminu eru á klíníska þekkingu og færni, styrkingu fagmennsku og rannsóknarlæsi. Áætlað er að 15 stúdentar hefji nám í fyrsta árgangi haustið 2027. Námsleiðin verður vistuð við Hjúkrunarfræðideild á Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviði háskólans og byggir að stórum hluta á námskeiðum sem þegar eru kennd við háskólann. Jafnframt verða þróuð sex ný, sérhæfð klínísk námskeið í áfengis- og vímuefnaráðgjöf.

Með nýja náminu tekur Háskólinn á Akureyri mikilvægt skref í að efla menntun, fagmennsku og þjónustugæði á sviði fíknivanda. Námið mun skapa skýrari starfsleið fyrir framtíðaráfengis- og vímuefnaráðgjafa, styrkja stöðu fagstéttarinnar og auka möguleika heilbrigðis- og félagsþjónustu um land allt til að veita einstaklingum og fjölskyldum þeirra heildræna og gagnreynda þjónustu.