Háskólaráð Háskólans á Akureyri samþykkti á fundi sínum 26. september að setja á laggirnar nýtt nám í Kennslu íslensku sem annars máls við Kennaradeild. Námið svarar vaxandi þörf fyrir sérhæfingu kennara í fjöltyngdu skólasamfélagi.
Nemendum með annað móðurmál en íslensku hefur fjölgað jafnt og þétt í íslenskum skólum. Á tíu árum, frá 2013 til 2023, meira en tvöfaldaðist hlutfall grunnskólanemenda með annað móðurmál en íslensku, úr 6,5% í 15,5%, samkvæmt Hagstofu Íslands. Rannsóknir benda til þess að efla þurfi stuðning við námslegar og félagslegar þarfir fjöltyngdra nemenda og að þörf er fyrir aukna áherslu á fjöltyngi og kennslu íslensku sem annars máls í kennaramenntun á Íslandi.
Námið svarar ákalli og brýnni samfélagsþörf
„Kennarar hafa kallað eftir fleiri tækifærum til að sérhæfa sig í kennslu íslensku sem annars máls. Einnig segir í stefnu háskólans til ársins 2030 að lögð sé áhersla á lifandi, metnaðarfullt og framsækið nám og nýsköpun í takt við þarfir samfélagsins. Með þessu námi er brugðist við því ákalli og gengið í takt við stefnumótun. Við viljum efla kennara til að styðja við nám og þátttöku fjöltyngdra nemenda og byggjum þar á öflugri sérþekkingu innan háskólans,“ segir Tom Barry, sviðsforseti Hug- og félagsvísindasviðs.
Innan Kennaradeildar er víðtæk þekking á fjöltyngi, máltöku, læsi og tungumálakennslu. Auk þess verður auglýst sérstök staða innan deildarinnar til að sinna þessari kennslu.
Fyrirkomulag námsins
Námið var hannað í samstarfi við lykilaðila í kennslu íslensku sem annars máls í leik- grunn- og framhaldsskólum auk aðkomu Miðstöðvar skólaþróunar við HA. Boðið verður upp á þrjú ný sérnámskeið um kennslu íslensku sem annars máls auk þess sem námsleiðin byggir á námskeiðum sem þegar eru kennd við Kennaradeild. Starfandi kennarar geta lokið 60 eininga viðbótardiplómu á einu ári eða 120 eininga meistaraprófi á tveimur árum, þar sem þeir dýpka sérhæfingu sína með meistararitgerð.