Hreiðar Þór hlýtur viðurkenningu fyrir sjálfbærni í kennslu

Grænu kennsluverðlaunin 2026
Hreiðar Þór hlýtur viðurkenningu fyrir sjálfbærni í kennslu

Umhverfisráð Háskólans á Akureyri veitir í fimmta sinn viðurkenningu fyrir kennslu sem leggur áherslu á sjálfbærni og umhverfismeðvitund. Viðurkenninguna í ár hlýtur Hreiðar Þór Valtýsson, dósent við Auðlindadeild, fyrir námskeiðið sjávarlíffræði sem kennt er við Auðlindadeild.

Námskeið sem tengir sjálfbærni og hafið

Námskeiðið fjallar um vistkerfi hafsins, líffræðilegan fjölbreytileika og sjálfbæra nýtingu sjávarauðlinda og hefur sjálfbærni verið hluti af námskeiðinu frá upphafi. Í námskeiðinu er fjallað um mikilvægar ógnir eins og hlýnun sjávar og örplast. Þá leggur viðfangsefni námskeiðsins grunn að því að ungt fólk verði meðvitað um eigin athafnir og ákvarðanir sem geta dregið úr neikvæðum afleiðingum þessara manngerðu vandamála.

„Það er mikilvægt fyrir mig að fá þessi verðlaun og hvetur mig áfram í starfi. Ég tel afar mikilvægt að sem flestir Íslendingar, auðvitað sérstaklega þeir sem starfa í sjávarútvegi, skilji náttúruna sem er að gefa okkur þessa mikilvægu auðlind. Skilningurinn gerir okkur kleift að ganga um hana af virðingu,“ segir Hreiðar.

Verkleg kennsla í fyrirrúmi

Verkleg kennsla er veigamikill hluti námskeiðsins. Stúdentar fara í sjóferð þar sem þeir safna sýnum af sjávarlífverum og greina þau síðar á rannsóknarstofu. Þeir kynnast jafnframt lífríki hafsins með aðstoð neðansjávardróna sem gefur þeim einstakt tækifæri til að tengja fræðilega þekkingu við raunverulegt hafumhverfi.

Hreiðar er dósent við Auðlindadeild og var útibússtjóri Hafrannsóknastofnunar á Akureyri áður en hann hóf störf við HA. Rannsóknir hans beinast að vistkerfi hafsins og nýtingu sjávarauðlinda á norðurslóðum. Þá hefur Hreiðar tekið virkan þátt í fræðsluverkefnum um sjálfbærar fiskveiðar.

Háskólinn á Akureyri óskar Hreiðari innilega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu. Þá er honum jafnframt þakkað fyrir framlag hans til að auka umhverfismeðvitund og sjálfbærni í kennslu og vísindamiðlun.