Skjalasöfnin, minnið og alþjóðalögin á Norðurslóðum

Ný bók eftir Rachael Lorna Johnstone, prófessor við Lagadeild og rannsóknastjóra háskólans
Skjalasöfnin, minnið og alþjóðalögin á Norðurslóðum

Bókin fjallar um hvernig skjalasöfn móta skilning okkar á sögu norðurslóða og íbúa svæðisins. Í bókinni, sem heitir International Law and Displaced Archives in Arctic Countries, er fjallað um hver fer með stjórn sögulegra heimilda og hvernig skjalasöfn stuðla að mótun sameiginlegra minninga og þjóðarvitundar. Einnig er skoðað hvaða réttindi frumbyggjar hafa þegar kemur að aðgengi og umsjón með gögnum er varða samfélög þeirra. Bókin byggir á dæmum frá Íslandi, Kanada, Grænlandi og Sápmi. Rachael ritstýrði bókinni ásamt James Lowry, prófessor við City University of New York.

Lifandi skjalasöfn og landamæri

Í bókinni eru einnig fræðileg framlög frá Romain Chuffart, Nansen-prófessor við Háskólann á Akureyri, og Giorgio Baruchello, prófessor í heimspeki, ásamt framlagi frá fleirum.

Rachael og Romain fjalla um hvernig alþjóðalög geta átt við um skjalasöfn utan upprunasamfélaga sinna. Þá fjalla Romain og Apostolos Tsiouvalas, nýdoktor við UiT: Norðurskautsháskólann í Tromsø og fyrrverandi nemandi í heimskautarétti, um Thule-lögin frá 1929 fyrir norðvesturhluta Grænlands sem lifandi skjalasafn. Romain skrifar einnig um landamæri í Sápmi og líkir þeim við skjalasöfn, heimkynni Sáma. Giorgio veltir fyrir sér hugmyndum Jacques Derrida í hinu áhrifamikla verki Archive Fever.

Þá fjalla Njörður Sigurðsson og Bjarni Már Magnússon um dönsku sendinguna 1928, endurheimt sögulegra íslenskra skjala frá Danmörku til Íslands, í samhengi við sjálfstæðisbaráttu Íslands.

Útgáfukynning 30. október

International Law and Displaced Archives in Arctic Countries er fimmta bókin í Brill-ritröðinni Studies in Polar Law. Hún er lokaverk rannsóknarverkefnisins Decolonising Nordic Archives sem styrkt er af NordForsk. Verkefnið er undir stjórn Rachael og byggir jafnframt á samstarfi fræðafólks innan Arctic Archives-hópsins UArctic Thematic Network on Arctic Law.

Bókin er aðgengileg í opnum aðgangi á Brill og þar er einnig hægt að panta prentað eintak.

Bókaútgáfunni verður fagnað með útgáfukynningu í Háskólanum á Akureyri 30. október, þar sem efni bókarinnar verður kynnt og rætt. Nánari upplýsingar verða birtar síðar.

mynd af gömlum handritum