Hugbúnaður til heilsu

Alþjóðlegt samstarf í hjúkrunarfræði heldur áfram í Lissabon
Hugbúnaður til heilsu

Tólf stúdentar á öðru ári í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri lögðu land undir fót á dögunum til að taka þátt í alþjóðlegu námskeiði í Lissabon. Námskeiðið var dagana 28. september til 2. október og ásamt íslensku stúdentunum voru á því hjúkrunarnemar frá Portúgal og Noregi. Með í för voru einnig Þórhalla Sigurðardóttir, Anna Karen Sigurjónsdóttir og Kolbrún Sigurlásdóttir, sem allar starfa við Hjúkrunarfræðideild, auk Valgeirs Árnasonar kerfisstjóra.

Ferðin er hluti af samstarfi þriggja háskóla um hermikennslu og heilsufarsmat með aðstoð hugbúnaðarins Body Interact. Auk Háskólans á Akureyri taka þátt í verkefninu Rauða kross háskólinn í Lissabon í Portúgal og Háskólinn í Suðaustur-Noregi.

Hermikennsla óháð staðsetningu

Body Interact er gagnvirkur hugbúnaður fyrir hermikennslu þar sem nemendur takast á við raunhæf klínísk tilfelli og þurfa að beita þekkingu sinni, gagnrýninni hugsun og klínískri ákvarðanatöku. Hugbúnaðinn er hægt að nýta bæði í stað- og fjarnámi og geta nemendur jafnframt notað hann í eigin tölvum og snjalltækjum.

Samstarfsskólarnir hafa nú þegar nýtt hugbúnaðinn í kennslu undanfarin fimm ár og hefur Háskólinn á Akureyri fjárfest í ársáskrift að Body Interact. Samstarfið gefur því kennurum og stúdentum við HA mikilvægt tækifæri til að nýta reynslu samstarfsskólanna og miðla þekkingu sín á milli.

Heilsufarsmat og hjúkrun í Portúgal

Ferðin er hluti af valnámskeiði í hjúkrunarfræði við háskólann og gefur fjórar ECTS-einingar. Kennsla námskeiðsins fer öll fram á ensku og námsumhverfið er í Google Classroom. Námskeiðið samanstendur af vefnámi sem fór fram tvo daga í september, ferðinni til Lissabon og síðari hluta vefnámsins, sem fer fram um miðjan október. Þar munu stúdentar kynna verkefni sín og ljúka þar með námskeiðinu.

Dagskráin í Lissabon var fjölbreytt. Nemendur frá löndunum þremur unnu saman að verkefnum í hermikennslu og tóku einnig þátt í heilsufarsmati eldri borgara, kynntust hjúkrun og heilbrigðisþjónustu í Portúgal og fóru í kynnis- og skoðunarferðir.

Ferðin til Lissabon tókst einstaklega vel og sneri hópurinn heim reynslunni ríkari. Stúdentarnir stóðu sig afar vel og nú tekur við áframhaldandi vinna við að nýta reynsluna úr samstarfinu og innleiða nýjar leiðir í hermikennslu við Háskólann á Akureyri.

Frá Noregi til Portúgals – og næst til Akureyrar

Haustið 2025 fóru 9 stúdentar á öðru ári í hjúkrunarfræði ásamt Þórhöllu, Önnu Karen og Kolbrúnu til Noregs. Þar var hugbúnaðurinn nýttur í þjálfun í hermikennslu og heilsufarsmati.

Í ár var svo komið að portúgalska samstarfsháskólanum að taka á móti hópnum. Haustið 2027 er síðan stefnt að því að nemendur og kennarar frá Portúgal og Noregi komi til Akureyrar. Þátttaka nemenda og kennara í samstarfinu er styrkt af Erasmus+.