Sex félagasamtök og einstaklingar fá viðurkenningu fyrir framlag til jafnréttis, inngildingar og fjölbreytileika
Frá og með þessu ári mun Jafnréttisráð Háskólans á Akureyri veita árlega sérstaka viðurkenningu fyrir framlag til jafnréttis, inngildingar og fjölbreytileika, í samræmi við jafnréttisstefnu háskólans. Í ár fór afhending viðurkenninganna fram í vöfflukaffinu þann 12. febrúar síðastliðinn sem haldið var í tilefni Jafnréttisdaga.
Óskað var eftir tilnefningum úr háskólasamfélaginu og að lokinni yfirferð ákvað Jafnréttisráð að veita sex viðurkenningar að þessu sinni. Þær fara til félagasamtaka og einstaklinga sem hafa unnið mikilvægt og verðugt starf sem rétt þykir að heiðra og vekja athygli á. Á forsíðumyndina af handhöfunum vantar Hrafnhildi Eggerz Haraldsdóttur. Fórsíðumyndina og myndir á Jafnréttisödgum tók Jóndís Inga Hinriksdóttir og geta áhugasöm nálgast fleiri myndirnar hér.
Jafnréttisviðurkenningu Jafnréttisráðs árið 2026 hljóta:
Berglind Hólm Ragnarsdóttir

Berglind er lektor við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri og hefur frá ráðningu sinni haft víðtæk og jákvæð áhrif á jafnréttismál innan háskólans og í samfélaginu. Hún hefur unnið að jafnrétti á fjölmörgum sviðum — í rannsóknum, kennslu, nefndarstörfum og með samfélagsþjónustu. Rannsóknaráherslur hennar beinast að jafnrétti og stéttarstöðu. Á undanförnum árum hefur hún verið ötul við að miðla rannsóknarniðurstöðum bæði á innlendum og erlendum vettvangi. Í kennslu leggur Berglind ríka áherslu á jafnrétti og gagnrýna hugsun en stúdentar sem tilnefndu hana tóku sérstaklega fram að hún hefði einstakt lag á að kveikja áhuga þeirra á jafnréttismálum. Berglind gegndi einnig formennsku í Jafnréttisráði á árunum 2022–2024 og leiddi vinnu við gerð nýrrar jafnréttisáætlunar HA, þar sem áhersla var lögð á að gera háskólann að inngildandi menntastofnun sem virðir og styður fjölbreytileika. Auk starfa innan háskólans hefur Berglind tekið virkan þátt í samfélagslegu jafnréttisstarfi, meðal annars með fyrirlestrahaldi fyrir ólíka hópa og með setu í stjórn Aflsins á Akureyri.
Ergi – Félag Hinsegin Stúdenta á Norðurlandi

Félagið Ergi var stofnað sumarið 2025, meðal annars af stúdentum Háskólans á Akureyri, sem sáu brýna þörf fyrir starfsemi af þessu tagi og ákváðu að koma Ergi á laggirnar. Að skapa öruggt rými og tækifæri fyrir hinsegin stúdenta til að efla tengslanet sitt hefur reynst sérstaklega mikilvægt í ljósi þess bakslags í jafnréttismálum sem mæta má í samfélaginu í dag. Með stofnun félagsins hefur Ergi veitt hinseginleikanum mun stærra og sýnilegra rými innan háskólasamfélagsins í HA, en slíkur sýnileiki og tilfinning fyrir að tilheyra eru lykilþættir í inngildingu hinsegin stúdenta og starfsfólks. Einnig hefur félagið gegnt mikilvægu ráðgjafarhlutverki fyrir jafnréttisráð á þessu starfsári og þannig stuðlað að aukinni inngildingu og stuðningi við hinsegin stúdenta.
Hrafnhildur Eggerz Haraldsdóttir

Hrafnhildur er á þriðja ári í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri og hlýtur viðurkenningu fyrir framlag sitt til örnámskeiðsins Gender Identity, sem var samstarfsverkefni Hjúkrunarfræðideildar HA og norrænna samstarfsskóla deildarinnar. Hún tók virkan þátt í námskeiðinu sem meðstjórnandi og skipulagði ýmsa hluta þess. Þá sá hún einnig um að kynna námskeiðið á árlegu ráðstefnunni Sjónaukanum þar sem hún vakti sérstaka athygli á fjölbreytileika LGBTQIA+ samfélagsins með frumlegu og áhrifamiklu innleggi. Framlag Hrafnhildar á Sjónaukanum er skýrt dæmi um það hvernig stúdentar í grunnnámi geta lagt sitt af mörkum til akademískrar umræðu um jafnréttismál.
Margrét Unnur Ólafsdóttir

Margrét er á þriðja ári í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri og hlýtur viðurkenningu fyrir framlag sitt til örnámskeiðsins Gender Identity, sem var samstarfsverkefni Hjúkrunarfræðideildar HA og norrænna samstarfsskóla deildarinnar. Hún tók virkan þátt í námskeiðinu sem meðstjórnandi og kom að skipulagningu ýmissa hluta þess. Í þeirri vinnu sýndi hún framúrskarandi hæfileika til að skapa öruggt, innifalið og hvetjandi námsumhverfi, með jákvæðu viðmóti og einstakri næmni fyrir jafnrétti og mannréttindum. Margrét sá einnig um að kynna námskeiðið á árlegu ráðstefnunni Sjónaukanum, þar sem hún flutti myndbandsfyrirlestur um efnið. Áhugi hennar á jafnréttismálum endurspeglast enn fremur í áframhaldandi þátttöku hennar í námskeiðinu, sem verður kennt aftur í apríl í Noregi — að þessu sinni sem fyrirlesari og leiðbeinandi í vinnustofu.
Jóhannes Már Pétursson

Jóhannes er formaður Alþjóðanefndar SHA og hefur frá upphafi sinnt því hlutverki af miklum dugnaði og heilindum. Hann hefur lagt sérstaka áherslu á að tala máli stúdenta af erlendum uppruna, skapa tengsl við skiptinema og annast samskipti við þann hóp, meðal annars í gegnum virka upplýsingamiðlun á sérstökum WhatsApp-hópi. Með því hefur hann tryggt að þeir fái mikilvægar upplýsingar um viðburði og tækifæri sem auðvelda þeim að tengjast samfélaginu meðan á dvölinni stendur. Jóhannes er jafnframt ávallt reiðubúinn að aðstoða þegar til hans er leitað, hvort sem það er af hálfu stúdenta af erlendum uppruna eða annarra sem vilja styrkja tengsl og stuðning við þann hóp. Þá hefur hann einnig gætt hagsmuna erlendra stúdenta opinberlega með greinaskrifum, þar sem hann hefur bent á mögulegar afleiðingar frumvarps sem varðar atvinnuréttindi erlendra stúdenta.
Sara Stefánsdóttir

Sara er lektor við Iðjuþjálfunarfræðideild Háskólans á Akureyri og hlýtur viðurkenningu fyrir ötult og óeigingjarnt starf við að koma á fót og þróa grunndiplómanám fyrir fólk með fjölþættar stuðningsþarfir, í samstarfi við iðjuþjálfunarfræði HA. Hún lauk nýlega doktorsprófi í fötlunarfræðum þar sem hún rannsakaði stöðu seinfærra foreldra og þær kerfislægu hindranir sem þau mæta, meðal annars erfiðleika í aðgengi að viðeigandi stuðningi og í samskiptum við kerfi sem koma að málefnum fjölskyldna. Í desember síðastliðnum hlaut Sara verðlaun frá ÖBÍ réttindasamtökum fyrir framúrskarandi doktorsritgerð í fötlunarfræðum. Þetta voru fyrstu verðlaunin sem ÖBÍ veitir fyrir lokaverkefni á meistara- og doktorsstigi með áherslu á fatlað fólk og/eða fötlunarfræði.
Við óskum öllum handhöfum Jafnréttisviðurkenningar Jafnréttisráðs innilega til hamingju með verðskuldaðar viðurkenningar!