Jafnt aðgengi að náms- og starfsráðgjöf óháð búsetu

Námskeið um náms- og starfsráðgjöf í dreifbýli haldið á Akureyri
Jafnt aðgengi að náms- og starfsráðgjöf óháð búsetu

Dagana 10. til 13. mars fór fram alþjóðlegt námskeið á Akureyri á vegum Félags náms- og starfsráðgjafa á Íslandi, með stuðningi Evrópumiðstöðvar náms- og starfsráðgjafar – Euroguidance á Íslandi. Námskeiðið er hluti af svokölluðu Academia-prógrammi sem Euroguidance býður náms- og starfsráðgjöfum í Evrópu þátttöku í ár hvert. Ísland tók nú þátt í fyrsta sinn eftir langt hlé.

Auk þátttakenda frá HA sóttu námskeiðið um tíu náms- og starfsráðgjafar frá Noregi, Frakklandi, Sviss, Lettlandi, Írlandi, Lúxemborg, Spáni, Þýskalandi, Svíþjóð og Rúmeníu.

Áhersla er lögð á ráðgjöf í dreifbýli

Meginviðfangsefni námskeiðsins var hvernig efla megi náms- og starfsráðgjöf í dreifbýli. Markmiðið var að styrkja hæfni þátttakenda til að veita hagnýta ráðgjöf í smærri samfélögum og á afskekktum svæðum, meðal annars með nýtingu stafrænnar tækni og nýsköpunar í þjónustu.

Sérstök áhersla var lögð á að skoða helstu áskoranir og tækifæri sem felast í ráðgjöf utan stærstu þéttbýlissvæða, bæði á Íslandi og í evrópsku samfélagi. Þátttakendur kynntu sér mismunandi kerfi og starfshætti milli landa og unnu að hugmyndum að verkefnum sem stuðla að jöfnu aðgengi að ráðgjöf óháð búsetu.

Heimsóknir og vettvangsnám

Dagskráin hófst 10. mars með óformlegri samveru þátttakenda. Daginn eftir hófst formleg dagskrá við Háskólann á Akureyri þar sem þátttakendur heimsóttu Háskóladaginn, fengu kynningu á nemendaráðgjöf HA og leiðsögn um háskólann. Þá unnu þeir verkefni tengt vefnum Næstu skref, sem veitir upplýsingar um nám og störf á Íslandi.

Þann 12. mars heimsóttu þátttakendur Framhaldsskólann á Laugum þar sem Hallur Birkir Reynisson, áfangastjóri, kynnti uppbyggingu náms við skólann. Að því loknu var haldið til Húsavíkur, á Stéttina, þar sem starfsfólk Þekkinganets Þingeyinga tók á móti hópnum. Þær Guðrún Helga Ágústsdóttir og Lilja Berglind Rögnvaldsdóttir kynntu starfsemi Þekkinganetsins og fjölluðu um mikilvægi símenntunar fyrir atvinnulíf svæðisins, ásamt verkefnum tengdum námsleiðum og raunfærnimati. Einnig fékk hópurinn kynningu á Fab Lab Húsavík.

Innlit í ráðgjöf og lokaumræður

Síðasta daginn fylgdust þátttakendur með störfum ráðgjafa á vettvangi hjá Símenntunarstöð Eyjafjarðar og við Verkmenntaskólann á Akureyri.

Í lok námskeiðsins fóru fram pallborðsumræður um mikilvægi náms- og starfsráðgjafar í dreifbýli. Þar fluttu erindi María Jónsdóttir, forstöðumaður Nemendaráðgjafar HA, Hekla Pálmadóttir, stúdent í iðjuþjálfunarfræði við HA, og Sindri S. Kristjánsson, skrifstofustjóri Rektorsskrifstofu.

Í framhaldinu sköpuðust líflegar umræður um næstu skref í þróun ráðgjafarþjónustu sem tryggir fólki jafnt aðgengi að upplýsingum og stuðningi við náms- og starfsval óháð búsetu.