Jón Steindór Árnason ráðinn sviðsstjóri Fjármála- og rekstrarsviðs

Mun leiða mótun eins af fjórum nýjum sviðum háskólans
Jón Steindór Árnason ráðinn sviðsstjóri Fjármála- og rekstrarsviðs

Jón Steindór Árnason hefur verið ráðinn sviðsstjóri Fjármála- og rekstrarsviðs. Jón Steindór býr yfir umfangsmikilli reynslu af rekstri fyrirtækja, fjárfestingum og stefnumótun og hefur á undanförnum árum gegnt lykilhlutverkum á íslenskum fjármála- og atvinnumarkaði.

„Það er ánægjulegt að fá tækifæri til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu Háskólans á Akureyri. Sem fyrrverandi nemandi skólans þekki ég vel það mikilvæga hlutverk sem hann gegnir fyrir samfélagið og atvinnulífið. Fram undan eru spennandi verkefni og ég hlakka til að vinna með öflugu starfsfólki að því að byggja upp sterkt fjármála- og rekstrarsvið sem styður við metnaðarfulla starfsemi háskólans á sviði kennslu, rannsókna og samfélagsþjónustu,“ segir Jón Steindór.

Mikil reynsla úr atvinnulífi og fjármálum

Frá árinu 2021 hefur Jón Steindór starfað sem fjárfestingastjóri óskráðra hlutabréfa hjá KEA þar sem hann hefur komið að mati og eftirfylgni fjölbreyttra fjárfestinga. Þar áður var hann í átta ár framkvæmdastjóri fagfjárfestasjóða hjá Íslenskum verðbréfum og leiddi fjárfestingar í fyrirtækjum víða um land.
Jón Steindór hefur jafnframt starfað sem sjálfstæður ráðgjafi og komið að stefnumótunar- og skipulagsverkefnum hjá Fjármálaeftirlitinu. Þá starfaði hann um árabil hjá Byr sparisjóði og Sparisjóði Hafnarfjarðar við viðskiptaþróun, markaðsmál og verkefnastjórn.

Samhliða störfum sínum hefur Jón setið í stjórn fjölda fyrirtækja og félaga, bæði sem formaður, varaformaður og stjórnarmaður. Hann er með B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri og M.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.

Við bjóðum Jón Steindór hjartanlega velkominn í hóp HA-inga! 

Nýtt skipurit Háskólans á Akureyri

Í ágúst tekur gildi nýtt skipurit Háskólans á Akureyri. Samkvæmt því mun stoðþjónusta og stjórnsýsla háskólans skiptast niður í fjögur stoðsvið. Eitt þeirra sviða er Fjármála- og rekstrarsvið. Undir sviðið falla fjármál og bókhald, greiningar, fasteignaumsýsla og mötuneyti.