Félagsfræðingafélag Íslands veitti viðurkenningar fyrir framúrskarandi lokaritgerðir á Félagsfræðideginum
Karen Mist Brynjarsdóttir hlaut viðurkenningu Félagsfræðingafélags Íslands fyrir framúrskarandi BA-ritgerð 29. október síðastliðinn. Karen lauk BA-gráðu frá Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri í júní síðastliðnum.
Ritgerð Karenar Mistar ber heitið „Ég vil þetta svo mikið og ég reyni á hverjum degi“ – Vinnustaðurinn sem vettvangur inngildingar: Upplifun erlendra kvenna af starfi í grunnskólum. Leiðbeinandi hennar var Andrea Hjálmsdóttir, dósent við Félagsvísindadeild við Háskólann á Akureyri.

Karen Mist með viðurkenninguna
Viðurkenningin var afhent á Félagsfræðideginum, sem haldinn var hátíðlegur með málþingi í Odda í Háskóla Íslands. Félagsfræðingafélag Íslands veitir árlega slíkar viðurkenningar fyrir framúrskarandi lokaritgerðir á sviði félagsfræði í grunn- og meistaranámi. Nemendur og leiðbeinendur geta tilnefnt ritgerðir sem hlutu einkunnina 9 eða hærra.
Auk Karenar Mistar hlutu þær Guðbjörg Alma Sigurðardóttir og Hilma Ösp Áskelsdóttir, báðar frá Háskóla Íslands, viðurkenningar. Guðbjörg Alma fékk viðurkenningu fyrir BA-ritgerð um viðhorf hinsegin einstaklinga til notkunar gervigreindar í ráðningarferli og Hilma Ösp fyrir MA-ritgerð um hatursglæpi meðal ungmenna á Íslandi.
Háskólinn á Akureyri óskar Karen Mist og öðrum viðurkenningarhöfum innilega til hamingju.
Smelltu hér til að fræðast meira um Félagsfræðingafélag Íslands
Ljósmyndir: Adda Guðrún Gylfadóttir.