Landsþing LÍS haldið í Hátíðarsal Háskólans á Akureyri

Landsþing Landssamtaka íslenskra stúdenta var haldið í Hátíðarsal Háskólans á Akureyri 2026 og var yfirskrift þingsins Háskólastefna og sjónarhorn stúdenta
Landsþing LÍS haldið í Hátíðarsal Háskólans á Akureyri

Stærsti samráðsvettvangur stúdenta, hið árlega Landsþing Landssamtaka íslenskra stúdenta (LÍS) , var haldið um liðna helgi í Hátíðarsal Háskólans á Akureyri.

Yfirskrift þingsins var Háskólastefna og sjónarhorn stúdenta. Þingið var nýtt í vinnustofur til þess að móta og ræða áherslur stúdenta í fyrirhugaðri háskólastefnu stjórnvalda.

„Á Landsþingi koma saman háskólastúdentar frá öllum háskólum landsins og fulltrúar stúdenta í námi erlendis, til þess að bera saman bækur sínar og stefnumóta áherslur stúdentahreyfingarinnar á landsvísu. Á þinginu voru teknar fyrir á annan tug ályktana og yfirlýsinga frá stúdentafulltrúum og líflegar umræður um háskólasamfélagið einkenndu helgina,“ segir Lísa Margrét Gunnarsdóttir forseti LÍS eftir helgina.

Fulltrúar stúdenta voru heillaðir af frú Höllu Tómasdóttur forseta Íslands sem mætti á þingið og átti þar samtal við stúdenta. „Við fréttum af því að forseti Íslands yrði stödd í HA á sama tíma og Landsþing LÍS færi fram og könnuðum því áhuga forseta á því að ávarpa þingið. Frú Halla var svo sannarlega til í það með því skilyrði að hún myndi eiga samtal við stúdenta fremur en hefðbundið ávarp,“ segir Aðalbjörn Jóhannsson forseti SHA. Um þátttöku forseta segir Aðalbjörn „úr varð virkilega áhugaverð umræða um framtíð háskólanáms, stöðu stúdenta og áhrif gervigreindar. Það var augljóst hversu vel hún þekkti þessi málefni og hversu mikinn áhuga hún hefur á sjónarhorni stúdenta. Hún skapaði einstakt samtal á jafningjagrundvelli sem við vorum öll heilluð af.“

„Landsþingið sjálft fór fram af miklum krafti og metnaði. Þema þingsins í ár var viðeigandi þar sem það er svo sannarlega stórt og mikilvægt verkefni framundan sem snýr að háskólastefnu ríkisins. SHA var stoltur gestgjafi þingsins í ár. Það er einmitt mjög mikilvægt að þingið fari fram víðar en á höfuðborgarsvæðinu eða í nálægð við það. LÍS voru einmitt stofnuð á Akureyri árið 2013. Þá er er greinilegt að rödd okkar í HA og á landsbyggðinni skiptir máli innan LÍS og mér finnst gríðarlega mikilvægt að stúdentar HA séu virkir þátttakendur í starfi samtakanna. Háskólasamfélagið í HA getur verið gríðarlega stolt af sínum fulltrúum,“ segir Aðalbjörn að lokum.

Meðfylgjandi myndir tók Jóndís Hinriksdóttir og má nálgast fleiri myndir hér.