Líffræðileg fjölbreytni á norðurslóðum áherslumál til framtíðar

Háskólinn á Akureyri er samstarfsaðili að skipulagningu Arctic Biodiversity Summit á Grænlandi
Líffræðileg fjölbreytni á norðurslóðum áherslumál til framtíðar

Háskólinn á Akureyri gegnir lykilhlutverki við skipulagningu ráðstefnu sem ætlað er að vera stefnumótandi vettvangur verndunar líffræðilegrar fjölbreytni á norðurslóðum. Ráðstefnan ber heitið Arctic Biodiversity Summit og verður í Nuuk á Grænlandi í mars á næsta ári.

Tom Barry, sviðsforseti Hug- og félagsvísindasviðs, vinnur með umhverfis-, náttúru-, orku- og rannsóknamálaráðuneyti Grænlands, utanríkis-, viðskipta- og auðlindamálaráðuneyti Grænlands, Náttúrufræðistofnun Grænlands og Háskólanum í Árósum að undirbúningi þessa mikilvæga alþjóðlega viðburðar.

Ráðstefnan mun sameina vísindafólk, stefnumótandi aðila, frumbyggja, ungt fólk og aðra hagsmunaaðila í opinni og aðgengilegri samræðu, með það að markmiði að styrkja stjórnun líffræðilegrar fjölbreytni og efla samstarf á norðurslóðum.

Stefnumótandi vettvangur

Sem hluti af formennskuáætlun Danmerkur í Norðurskautsráðinu (Chairship programme) mun Arctic Biodiversity Summit verða stefnumótandi vettvangur til að efla verndun líffræðilegrar fjölbreytni og miðlun þekkingar á norðurslóðum. Viðburðurinn byggir á Stefnuáætlun Norðurskautsráðsins 2021–2030 og Aðgerðum fyrir líffræðilega fjölbreytni á norðurslóðum 2025–2035 , sem unnar voru af CAFF-vinnuhópnum. Skipulagning og framkvæmd ráðstefnunnar er styrkt af danska umhverfisráðuneytinu, Norrænu ráðherranefndinni og Velux-Foundation. 

Þetta samstarf undirstrikar vaxandi hlutverk Háskólans á Akureyri í alþjóðlegum rannsóknum og stefnumótun á norðurslóðum. Þátttaka í samstarfinu endurspeglar einnig hlutverk Akureyrar sem Norðurslóðamiðstöðvar Íslands og mikilvægi háskólans í áframhaldandi þróun hennar. 

Auglýst er eftir ágripum:

  • Umsóknafrestur vegna málstofa (session submissions): 13. september 2026
  • Umsóknafrestur vegna erinda (talk submissions): 15. október 2026
  • Umsóknafrestur vegna veggspjalda (poster submissions): 1. nóvember 2026